Lífeyrissjóðir lána mun meira til húsnæðiskaupa

Líf­eyr­is­sjóðir hafa lánað mun hærri upp­hæðir til hús­næð­is­kaupa að und­an­förnu miðað við síð­ustu ár. Nær fjór­falt meira var lánað með sjóðs­fé­laga­lánum á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins miðað við sama tíma í fyrra.

Talið er að líklegasta skýringin á auknum vinsældum sjóðsfélagalána séu hagstæðari kjör lánanna.
Talið er að lík­leg­asta skýr­ingin á auknum vin­sældum sjóðs­fé­laga­lána séu hag­stæð­ari kjör lán­anna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Líf­eyr­is­sjóðir hafa lánað mun hærri upp­hæðir til hús­næð­is­kaupa að und­an­förnu miðað við síð­ustu ár. Sjóð­irnir lán­uðu nær fjór­falt meira til sjóðs­fé­laga sinna á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins miðað við sama tíma í fyrra. Hag­fræð­ingur segir líf­eyr­is­sjóð­ina nán­ast einu aðil­ana hér á landi sem geti lánað fjár­magn til langs tíma í ein­hverjum mæli. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir að sjóðs­fé­laga­lán líf­eyr­is­sjóð­anna námu 12 millj­örðum króna frá byrjun des­em­ber til loka febr­úar, en það er hærri upp­hæð en lánuð var út allt árið 2014.

Haft er eftir Ásgeiri Jónssyni hag­fræð­ingi að líf­eyr­is­sjóðir séu með lengri fjár­mögnun en bank­arnir. Skuld­bind­ingar líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga séu ekki greiddar út fyrr en sjóðs­fé­lagar fari á eft­ir­laun, sem sé ára­tugum eftir að þeir hefji að greiða líf­eyri, öfugt við bank­ana sem séu mest megnis fjár­magn­aðir með óbundnum inni­stæðum. Það geri líf­eyr­is­sjóðum auð­veld­ara fyrir en bönk­unum að lána út til langs tíma.

Af sem áður var

Fram kom í Frétta­blað­inu í gær að íbúðum í eigu Íbúða­lána­sjóðs hafi fækkað um tæp fjöru­tíu pró­sent á síð­ustu tveimur árum. Eign­irnar voru tæp­lega 1.300 í lok mars 2016, sam­an­borið við rúm­lega 2.100 í mars árið 2014. Fram kom í blað­inu að stefnt sé að því að þær verði 750 í árs­lok.

Ásgeir segir að áður hafi líf­eyr­is­sjóðir einmitt að mestu leyti lánað félögum í gegn um Íbúða­lána­sjóð, sem aftur lán­aði um 60 pró­sent allra íbúða­lána Íslandi, oft­ast með skulda­bréfum sem líf­eyr­is­sjóðir keyptu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár