Forystufólk stjórnarandstöðunnar birtir upplýsingar úr skattskýrslum

For­ystu­fólk stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna ætla öll að birta upp­lýs­ingar úr skatt­skýrslum sínum. Auk félags­mála­ráð­herra hafa for­menn Sam­fylk­ingar og VG birt nú þegar. Bjarni Bene­dikts­son seg­ist ætla að meta þörf­ina á frek­ari birt­ingu gagna um fjár­mál sín.

Árni Páll og Katrín hafa nú þegar birt upplýsingarnar. Óttarr og Birgitta ætla að gera það á næstu dögum.
Árni Páll og Katrín hafa nú þegar birt upp­lýs­ing­arnar. Óttarr og Birgitta ætla að gera það á næstu dögum.

Þau Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ingar, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafa öll birt upp­lýs­ingar úr skatt­fram­tölum sínum. Eygló skráir sínar upp­lýs­ingar í hags­muna­skrán­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins, Árni Páll birti á heima­síðu sinni og Katrín skráði sínar upp­lýs­ingar í hags­muna­skrán­ingu á vef Vinstri grænna.

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, og Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segj­ast í sam­tali við Kjarnann ætla að birta sínar upp­lýs­ingar á næstu dögum.

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, birti afrit af skatt­fram­tali sínu og eig­in­konu sinnar á Facebook-síðu sinni í októ­ber í fyrra. Fram­tölin voru fyrir árin 2012 og 2013 og voru birt vegna frétta Stund­ar­innar af tengslum Illuga við fyr­ir­tækið Orka Energy.

Sigmundur sagði kröfuna um birtingu sjálfsagða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði í viðtali við Ísland í dag fyrir tíu dögum síðan að það gæti vel verið að það sé tímabært fyrir þau hjónin að opna bókhald sitt upp á gátt: „Í þessu tilviki held ég að það sé orðið að sjálfsagðri kröfu að hún geri grein fyrir þessu,“ sagði hann. Þá ættu líka aðrir að gera slíkt hið sama.

Ekki víst hvort Bjarni birti

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var spurður af Árna Páli á Alþingi í morgun hvort stæði til hjá honum að birta upp­lýs­ingar úr sínum skatt­fram­tölum. Bjarni svar­aði því til að hann ætl­aði að meta þörf­ina á frek­ari upp­lýs­inga­gjöf og það yrði bara að koma í ljós hvernig það yrði gert. Vilji þing­menn gera breyt­ingar á reglum um hags­muna­skrán­ingu ættu þær að vera gerðar á þverpóli­tískum vett­vangi á þing­inu.

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði við RÚV í gær að það væri eðli­legt að þeir ráð­herrar sem tengj­ast aflands­fé­lögum birti upp­lýs­ingar úr skatt­skýrslum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár