Umboðsmaður Alþingis segir ekki tilefni til frumkvæðisathugunar

Umboðs­maður Alþingis ætlar ekki að hefja frum­kvæð­is­at­hugun á aðkomu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar á afnámi gjald­eyr­is­hafta og upp­gjöri slita­búa föllnu bank­anna. Þetta kom fram á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun.

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, segir embættið hafa takmarkaða möguleika til að stunda frumkvæðisathuganir vegna fjárskorts og álags á starfsmönnum.
Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, segir emb­ættið hafa tak­mark­aða mögu­leika til að stunda frum­kvæð­is­at­hug­anir vegna fjár­skorts og álags á starfs­mönnum. Mynd: Birgir Þór

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, segir ekki til­efni til að hefja frum­kvæð­is­at­hugun á aðkomu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, á afnámi gjald­eyr­is­hafta og upp­gjöri slita­búa föllnu bank­anna. Þetta kom fram á fundi umboðs­manns með stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í morgun og Vísir greinir frá.

Á fund­inum sagði Tryggvi að hæf­is­reglur stjórn­sýslu­laga eigi aðeins við um stjórn­valds­á­kvarð­anir sem snertu rétt­indi borg­ar­anna. Eina van­hæf­is­reglan sem gilti um þing­menn væru að þeir mættu ekki greiða at­kvæði um fjár­út­lát til þeirra sjálfra. Hlutverk hæf­is­regla væri fyrst og fremst ætlað að vernda rétt­indi þeirra sem ákvarð­anir beindust að, er fram kemur í frétt Vísis.

Þá sagð­ist umboðs­maður ekki getað séð að um samn­inga hafi verið að ræða milli ríkis og kröfu­hafa í tengslum við upp­gjör slita­bú­anna og eða að stjórn­völd hafi tekið ákvarð­anir um greiðslur til ein­staka kröfu­hafa. Wintris, félag eig­in­konu Sig­mundar Davíðs, er einn kröfu­hafa í slita­búin.

Að mati Tryggva gæti hins vegar verið ástæða til að ganga lengra við hags­muna­skrán­ingu en nú er gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár