81 prósent treysta ekki Sigmundi Davíð - 61 prósent treysta ekki Bjarna

81 pró­sent lands­manna treysta Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, frekar eða mjög lítið. 60,6 pró­sent treysta Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, frekar eða mjög lítið. Einungis tíu pró­sent lands­manna treysta Sigmundi Davíð frekar eða mjög mikið og 21,7 pró­sent ber traust til Bjarna. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR um traust til for­ystu­fólks í stjórn­málum. Könnunin var gerð dag­anna 4. og 5. apríl og tekur því til atburða síð­ustu daga.

Þegar van­traust á Sigmund Davíð var síð­ast mælt, í apríl 2015, mæld­ist það 63,2 pró­sent. Hann nýtur nán­ast ein­ungis trausts hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks (77,8 pró­sent) og Sjálf­stæð­is­flokks (23,1 pró­sent). Núll pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ingar og 0,5 pró­sent kjós­enda Pírata treysta honum. Nær sömu sögu er að segja af Bjarna Bene­dikts­syni. Sjálf­stæð­is­menn treysta honum best (74.6 pró­sent) og Fram­sókn­ar­menn næst best (47,6 pró­sent). Traust til hans er vart mæl­an­legt hjá kjós­endur stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Sá stjórn­mála­maður sem nýtur mests trausts er Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Alls segj­ast 59,2 pró­sent aðspurðra treysta henni en 21,2 pró­sent van­treysta henni. Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, er sá for­ystu­maður í stjórn­málum sem nýtur næst mest trausts, eða 54,5 pró­sent. Van­traust gagn­vart honum er svipað og hjá Katrínu, eða 21,5 pró­sent. Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, mælist með 42,3 pró­sent traust en 26,6 pró­sent van­traust. Það kemur á óvart þar sem fylgi við Bjarta fram­tíð mælist ítrekað undir fimm pró­sentum í könn­unum og hefur gert það mán­uðum saman. 

Traust til Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, er mælt í könn­un­inni, en flokkur hans mælist með 43 pró­sent fylgi í nýrri könnun miðla 365 sem birt var í morgun. 40 pró­sent aðspurða segj­ast treysta honum frekar eða mjög vel. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, kemur þar á eftir með 28,6 pró­sent traust en 44,3 pró­sent van­traust. Það eru umtals­vert betri tölur en for­maður hans, Árni Páll Árnason, mælist með. Einungis 14,7 pró­sent treysta honum en van­traust á hann mælist 50,7 pró­sent.

Könnunin var gerð dag­anna 4. og 5. apríl. Svar­fjöldi var 969 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri sem valdir voru handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár