Eldra fólk eyðir yfir 20.000 krónum á mánuði í áskriftir

Útgjöld ein­stak­linga vegna áskrifta, fjar­skipta og miðla aukast eftir því sem þeir eld­ast. Ungt fólk eyðir að með­al­tali um 7.000 krónum á mán­uði í áskriftir.

Fólk á aldrinum 16 til 25 ára eyðir um 6000 krónum á mánuði í áskriftir að meðaltali.
Fólk á aldr­inum 16 til 25 ára eyðir um 6000 krónum á mán­uði í áskriftir að með­al­tali. Mynd: Úr safni

Síminn er með flesta áskrif­endur í mæl­ingum Meniga á áskriftum hjá fjar­skipta­fyr­ir­tækjum, net­þjón­ustu og miðlum. Nova er í öðru sæti og Vodafone í því þriðja. Þetta er einn af fáum útgjalda­flokkum sem Meniga mælir þar sem útgjöld aukast eftir því sem fólk verður eldra. Yngsti ald­urs­hóp­ur­inn, 16 til 25 ára, eyðir um 7.000 krónum á mán­uði í áskrift­ar­gjöld á meðan sá elsti, fólk yfir 66 ára, eyðir tæp­lega 30.000 á mán­uði.

Kjarninn fékk tölu­legar upp­lýs­ingar frá Meniga sem sýna neyslu­hegðun um 50.000 Íslend­inga árið 2015. Úrvinnsla Meniga byggir á töl­fræði­legum sam­an­tektum sem aldrei eru per­sónu­grein­an­legar. Tölurnar byggja á fjár­hags­legum 16 milljón færslum 50 þús­und not­enda sem veltu um 84 millj­örðum króna árið 2015. Meniga greinir ekki eftir heim­ilum, heldur með­al­tals­notkun ein­stak­linga.

Fleiri not­endur Meniga eru með áskrift að Skjánum en 365 miðlum. Skjárinn er með 6.640 áskrif­endur en 365 miðlar með 6.480. 

Apple, Spotify og Netflx eru ofar­lega á list­anum, með um 4.500 áskrif­endur hver. Playmo.tv, sem Íslend­ingar nota til að kom­ast inn á banda­ríska Netflix, er með 2.670 áskrif­endur. Árvakur, útgef­andi Morg­un­blaðs­ins, er í tíunda sæti á list­anum, með 2.255 áskrif­endur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár