Stýrivextir Seðlabanka áfram 5,75 prósent

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda stýri­vöxtum bank­ans óbreyttum og verða þeir því áfram 5,75 pró­sent. Samkvæmt yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar var hag­vöxtur í fyrra mjög nærri febr­ú­ar­spá Seðla­bank­ans. Þar segir einnig: „Vís­bend­ingar það sem af er ári gefa jafn­framt til kynna að horfur fyrir þetta ár hafi lítið breyst og að útlit sé einnig fyrir kröft­ugan hag­vöxt á næstu miss­erum.Verð­bólga mæld­ist 2,2% í febr­úar og hefur auk­ist um ríf­lega 1 pró­sentu frá því sem hún var fyrir ári. Sem fyrr veg­ast þar á inn­lendur verð­bólgu­þrýst­ingur og inn­flutt verð­hjöðnun á alþjóð­legum vöru­mörk­uðum. Áfram er útlit fyrir að verð­bólga verði undir mark­miði fram eftir ári en horfur eru óvissar, m.a. varð­andi inn­flutn­ings­verð­lag.

Alþjóð­leg verð­lags­þróun og sterk­ari króna hafa veitt svig­rúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauð­syn­legt. Það breytir hins vegar ekki því að miðað við spá Seðla­bank­ans er lík­legt að auka þurfi aðhald pen­inga­stefn­unnar frekar á næstu miss­erum í ljósi vax­andi inn­lends verð­bólgu­þrýst­ings. Hve mikið og hve hratt það ger­ist ræðst af fram­vind­unni."

Stýri­vextir voru hækk­aðir nokkuð á síð­ari hluta árs­ins 2015 en hafa nú verið óbreyttir frá því að þeir voru hækk­aðir í 5,75 pró­sent í nóv­em­ber í fyrra. Stýri­vextir á Íslandi eru mun hærri en víða í öðrum löndum í kringum okkur. Seðla­banki Evrópu til­kynnti til að mynda í síð­ustu viku að hann hefði ákveðið að lækka stýri­vexti sína úr 0,05 pró­sent í núll.

Stýri­vextir eru tæki sem stjórn­völd nota til að hafa áhrif á mark­aðsvexti. Því hærri sem stýri­vext­irnir eru því hærri eru mark­aðsvextir sem almenn­ingi og fyr­ir­tækjum bjóð­ast hjá lána­stofn­unum. Stýri­vextir eru hækk­aðir til að reyna að hafa áhrif á verð­bólgu og gengi íslensku krón­unnar, og þar með hag­vöxt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár