Fjárhagsleg framtíð Reykjanesbæjar ræðst á morgun

Reykja­nes­bær þarf 6,8 millj­arða króna í afskriftir. Sveit­ar­fé­lagið hefur sett kröfu­höfum sínum, sem eru að mestu inn­lendir bankar, afar­kosti. Annað hvort sam­þykki þeir afskrift­irnar á morgun eða Reykja­nes­bær lætur skipa sér fjár­halds­stjórn.

Reykja­nes­bær hefur gefið lána­drottnum Eign­ar­halds­fé­lags­ins Fast­eignar (EFF), sem er í eigu bæj­ar­ins, frest þar til á morgun, 5.febr­úar, til afskrifa millj­arða skuldir sveit­ar­fé­lags­ins. Verði þeir afar­kostir ekki sam­þykktir muni Reykja­nes­bær óska eftir því við inn­an­rík­is­ráðu­neytið að það skipi fjár­halds­stjórn yfir sveit­ar­fé­lag­inu. Sú fjár­halds­stjórn tæki þá yfir stjórn fjár­mála Reykja­nes­bæjar. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir að Reykja­nes­bær fari fram á að 6,8 millj­arðar króna af skuldum sveit­ar­fé­lags­ins við kröfu­hafa þess verði afskrif­aðar. Þær eru að lang­mestu leyti skuldir EFF. Lána­drottn­arnir eru hins vegar ekki til­búnir til að afskrifa nema 5,1 millj­arð króna. Stærstu lána­drottnar EFF eru inn­lendir bankar, Íslands­banki, Lands­bank­inn og þrotabú Glitnis. Krafa Glitnis hefur verið afhend íslenska rík­inu sem hluta af stöð­ug­leika­fram­lagi þess.

Bréf sem sent var kröfu­höfum var sam­þykkt á bæj­ar­ráðs­fundi á föstu­dag, fyrir sex dögum. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu atkvæði gegn því að senda bréfið.

Ótrúlegar skuldir

Reykja­nes­bær, er eitt skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014. Skuld­irnar eru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­línis í and­stöðu við lög. Til við­bótar eru skuldir EFF um átta millj­arðar króna og Reykja­nes­bær er í ábyrgð fyrir skuldum Reykja­nes­hafnar, sem skuldar rúma sjö millj­arða króna, aðal­lega vegna upp­bygg­ingu Helgu­vík­ur­hafnar. Tekjur á móti þeim skuldum sem stofnað var til hjá Reykja­nes­höfn eru litlar en reiknað var með að þær myndu að mestu leyti koma frá stór­iðju sem átti að byggj­ast upp á svæð­inu og nýta þjón­ustu hafn­ar­innar. Þau stór­iðju­á­form hafa enn sem komið er ekki orðið að veru­leika.

Kjarninn greindi frá því 3. októ­ber að Reykja­nes­höfn hefði form­lega óskað eftir fjár­magni frá Reykja­nesbæ til að geta staðið við greiðslur lána sem voru á gjald­daga 15. októ­ber 2015. Á meðal þess sem höfnin þurfti að greiða af voru tveir skulda­bréfa­flokkar. Þetta kom fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar, en umrædd skulda­bréf eru skráð þar. Í til­kynn­ing­unni sagði einnig: „Vegna yfir­stand­andi vinnu við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Reykja­nes­bæjar er óvissa um mögu­leika Reykja­nes­bæjar til að fjár­magna greiðsl­urnar. Því getur komið til greiðslu­falls á skuld­bind­ingum Reykja­nes­hafnar.“ Reykja­nes­höfn óskaði eftir, og fékk, greiðslu­fresti þegar ljóst var að hún gat ekki greitt ofan­greindar greiðslur. Sá frestur hefur verið fram­lengdur nokkrum sinnum síðan.

Mun verri afkoma en lagt var upp með

Í októ­ber síð­ast­liðnum var útkomu­spá Reykja­nes­bæjar fyrir árið 2015 birt í Kaup­höll­inni. Samkvæmt henni yrði sam­an­dregin rekstr­ar­nið­ur­staða nei­kvæð um 716 millj­ónir króna á árinu, sem er um 300 millj­ónum krónum verra en áætl­anir gerðu ráð fyrir. A-hlut­inn, sem er grunn­rekstur sveit­ar­fé­lags­ins, myndi verða rek­inn með 725 millj­óna króna tapi, en áætl­anir gerðu ráð fyrir 514 milljón króna tapi. Sam­an­lag­aður rekstur A- og B-hluta, sem er aðal­lega Reykja­nes­höfn og Fast­eignir Reykja­nes­bæjar (m.a. EFF), myndi verða rek­inn með 716 milljón króna tapi en áætl­anir höfðu gert fyrir að tapið yrði 411 millj­ónir krona.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórn

AðsentSveitarstjórn

Guðlaug Kristjánsdóttir

Frá vöxtum til vaxtar – við­snún­ingur í Hafn­ar­firði

Árið 2016 eru að verða vatna­skil í rekstri Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar. Stærsta fréttin er eflaust sú að bær­inn er að greiða niður lán án þess að stofna til nýrra, í fyrsta skipti síðan að minnsta kosti 2002. Það var tími til kom­inn. Á yfir­stand­andi ári var staðan orðin sú að fjár­magns­gjöld (kostn­aður vegna lána) voru nán­ast á pari við öll launa­gjöld í...
FréttirSveitarstjórn

Thorsil fær aftur frest til að greiða Reykja­nesbæ gatna­gerð­ar­gjöld

Reykja­nes­bær og Thorsil gerðu í dag með sér sam­komu­lag um að fresta greiðslu Thorsil á gatn­ar­gerð­ar­gjöldum sem fyr­ir­tækið á að greiða sveita­fé­lag­inu til 15. mars 2016. Upp­haf­lega áttu gjöldin að greið­ast 30. sept­em­ber en Thorsil fékk þá frest til 15. des­em­ber, eða í dag. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands. DV sagði frá því í októ­ber að...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár