Segir flugvallarvini hafa haldið uppi miklu áróðursstríði í gegnum fjölmiðla

Fram­kvæmda­stjóri Vals­manna segir flug­vall­ar­vini hafa fengið að fara fram með rangar full­yrð­ingar og vill­andi nafn­giftir. End­ur­teknar rang­færslur hafi sann­fært hluta almenn­ings og suma stjórn­ar­mála­menn.

Brynjar Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Vals­manna hf. sem standa að upp­bygg­ingu á Hlíð­ar­end­areit, segir að svo­kall­aðir flug­vall­ar­vinir hafi fengið að halda fram röngum full­yrð­ingum, vill­andi nafn­giftum og yfir­lýs­ingum í gegnum fjöl­miðla sem ekki fá stoð í gögnum og samn­ingum. Þar hafi verið haldið uppi miklu áróð­urs­stríði fyrir því að flug­braut 06/24 væri neyð­ar­braut. „Sömu rang­færslum hefur verið haldið fram aftur og aftur gagn­rýn­is­laust í fjöl­miðlum þar til hluti almenn­ings, og jafn­vel sumir stjórn­mála­menn, hafa byrjað að trúa þeim sem stað­reyndum máls­ins.“

Þetta kom fram í máli Brynjars á opnum fundi um upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis í Reykja­vík í morgun.

Staðið til að loka brautinni frá 2009

Mikill styr hefur staðið um fram­kvæmdir Vals­manna á Hlíð­ar­end­areitnum, en þar stendur til að byggja 600 íbúðir auk atvinnu­hús­næðis. Til að fram­kvæmd­irnar geti haft sinn gang þarf að loka flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, sem heitir einnig norð­austur suð­vestur-braut og hefur á liðnum árum iðu­lega verið nefnd neyð­ar­braut í opin­berri umræðu.

Lokun braut­ar­innar hefur staðið árum saman. Árið 2005 und­ir­rit­uðu þáver­andi borg­ar­stjóri Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir og þáver­andi sam­göngu­ráð­herra Sturla Böðv­ars­son sam­komu­lag um sam­göngu­mið­stöð sem rísa skyldi í Vatns­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­rit­uðu Kristján L. Möller, þáver­andi sam­göngu­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi borg­ar­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­göngu­mið­stöð við enda brautar 06/24.

Í októ­ber 2013 und­ir­rit­aði Hanna Birna, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, og Jón Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóri, sam­þykkt um að ljúka vinnu við end­ur­skoðun á deiliskipu­lagi fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl. Þegar því yrði lokið átti að til­kynna um lokun braut­ar­innar. Í des­em­ber 2013 óskaði inn­an­rík­is­ráðu­neytið eftir því að und­ir­bún­ingur yrði hafin að lokun flug­braut­ar­innar, með þeim fyr­ir­vara að ekk­ert yrði gert fyrr en að Rögnu­nefndin myndi skila nið­ur­stöðum sínum. Skýrslu hennar var skilað fyrr á þessu ári og nið­ur­staða nefnd­ar­innar leysti ekki deilur um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar á nokkurn hátt. Ákvörðun á grund­velli til­lagna hennar liggur enn ekki fyrir.

Fram­kvæmdir við jarð­vinnu á Hlíð­ar­end­areit eru þegar hafnar. Sam­göngu­stofa hefur hins vegar ekki viljað leyfa verk­tökum að koma bygg­inga­krönum fyrir á svæð­inu. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði í fréttum Stöðvar 2 á mið­viku­dag að ríkið væri ekki að standa við sinn hluta samn­ings varð­andi Rekyja­vík­ur­flug­völl og skipu­lag í Vatns­mýr­inni. Ákvörðun Sam­göngu­stofu hefði veru­leg áhrif á fram­kvæmdir á svæð­inu og væri að valda verk­tökum fjár­hags­legu tjóni.

Flugbraut notuð sem víglína í deilu um flugvöllinn

Brynjar var mjög harð­orður í fram­sögu sinni í dag. Hann sagði til­veru Reykja­vík­ur­flug­vallar vera algjör­lega óháða norð­vestur suð­austur-flug­braut­inni. „Þessi flug­braut er notuð sem víg­lína í deilu um til­vist Reykja­vík­ur­flug­vallar. Rang­túlk­anir um mik­il­vægi hennar, hvort sem er fyrir völl­inn í heild sinni, sjúkra­flug eða rang­nefni eins og að kalla braut­ina neyð­ar­braut hefur verið end­ur­tekið efni í fjöl­miðlum lands­manna.

Þessar deilur stefna nú upp­hafi bygg­inga­fram­kvæmda á Hlíð­ar­end­areit í óvissu með til­heyr­andi skaða fyrir fjölda aðila. Stað­reyndin er sú að Hlíð­ar­end­areitur getur og mun byggj­ast upp í sátt við Reykja­vík­ur­flug­völl. Það er ennþá tími til að snúa mál­inu á rétta braut og forða mála­ferlum með til­heyr­andi fjá­hags­skaða fyrir lóð­ar­eig­endur, verk­taka, fjölda hönn­uða og Reykja­vík­ur­borg. En ekki síst fyrir ungt fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem fær ekki rúm­lega 400 litlar íbúðir inn á íbúða­mark­að­inn verði þessi deila ekki leyst. Og loks fyrir rík­is­sjóð því það er hann sem mun þurfa að bera skaða­bóta­á­byrgð­ina af því að hafa skor­ast undan því að standa við und­ir­rit­aða samn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórn

AðsentSveitarstjórn

Guðlaug Kristjánsdóttir

Frá vöxtum til vaxtar – við­snún­ingur í Hafn­ar­firði

Árið 2016 eru að verða vatna­skil í rekstri Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar. Stærsta fréttin er eflaust sú að bær­inn er að greiða niður lán án þess að stofna til nýrra, í fyrsta skipti síðan að minnsta kosti 2002. Það var tími til kom­inn. Á yfir­stand­andi ári var staðan orðin sú að fjár­magns­gjöld (kostn­aður vegna lána) voru nán­ast á pari við öll launa­gjöld í...
FréttirSveitarstjórn

Thorsil fær aftur frest til að greiða Reykja­nesbæ gatna­gerð­ar­gjöld

Reykja­nes­bær og Thorsil gerðu í dag með sér sam­komu­lag um að fresta greiðslu Thorsil á gatn­ar­gerð­ar­gjöldum sem fyr­ir­tækið á að greiða sveita­fé­lag­inu til 15. mars 2016. Upp­haf­lega áttu gjöldin að greið­ast 30. sept­em­ber en Thorsil fékk þá frest til 15. des­em­ber, eða í dag. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands. DV sagði frá því í októ­ber að...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár