Thorsil fær aftur frest til að greiða Reykjanesbæ gatnagerðargjöld

Reykja­nes­bær og Thorsil gerðu í dag með sér sam­komu­lag um að fresta greiðslu Thorsil á gatn­ar­gerð­ar­gjöldum sem fyr­ir­tækið á að greiða sveita­fé­lag­inu til 15. mars 2016. Upp­haf­lega áttu gjöldin að greið­ast 30. sept­em­ber en Thorsil fékk þá frest til 15. des­em­ber, eða í dag. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands.

DV sagði frá því í októ­ber að Reykja­nes­höfn hefði gefið Thorsil, sem ætlar sér að byggja kís­il­málm­verk­smiðju í Helguvík, greiðslu­frest á gatna­gerð­ar­gjöldum vegna lóð­ar­innar undir verk­smiðj­una. Gjöldin áttu að greið­ast 30. sept­em­ber s en gjald­dag­anum var frestað til 15. des­em­ber. Honum hefur nú verið frestað aftur.

Hákon Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Thorsil, vildi ekki upp­lýsa DV um hversu háa upp­hæð er um að ræða. Ljóst er að litlar tekjur Reykja­nes­hafnar, sem hún þarf til að geta staðið við greiðslur af lánum, aukast ekki á meðan að stærsti við­skipta­vinur hennar greiðir ekki umsamin gjöld á réttum tíma.

Bygging verk­smiðju Thorsil er mjög umdeild í Reykja­nesbæ og í ágúst sam­þykkti bæj­ar­ráð sveit­ar­fé­lags­ins að efna til íbúa­kosn­ingu í nóv­em­ber vegna hennar. Samhliða var hins vegar sam­þykkt að íbúa­kosn­ingin yrði bind­andi og Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, sagði opin­ber­lega að nið­ur­staða hennar skipti í raun engu máli.

Nið­ur­staða kosn­ing­ar­innar lá fyrir í byrjun des­em­ber. Kosn­inga­þátt­taka var mjög dræm, en ein­ungis 8,7 pró­sent þeirra sem máttu greiða atkvæði gerðu það. Það þýðir að ein­ungis þriðj­ungur þeirra um 2.800 manna sem skrif­uðu undir áskorun til bæj­ar­yf­ir­valda um að halda kosn­ing­una kaus. Alls voru 471 íbúar sem tóku þátt hlynntir breyt­ingu á deiliskipu­lagi í Helguvík tengt upp­bygg­ingu verk­smiðj­unnar en 451 á móti. Tólf skil­uðu auðu.

Reykja­nes­bær glímir við mik­inn skulda­vanda. Sveit­ar­fé­lagið er það skuld­settasta á land­inu. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014. Skuld­irnar eru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­leiðis í and­stöðu við lög.

Skulda­vand­inn er að stóru leyti til­kom­inn vegna fjár­fest­inga í hafn­ar­fram­kvæmdum við Helguvík sem sveit­ar­fé­lagið er í ábyrgð fyrir. Í til­kynn­ingu sem Reykja­nes­bær sendi til Kaup­hallar Íslands í októ­ber sagði að sveit­ar­fé­lagið væri í við­ræðum við helstu kröfu­hafa sína um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu. Eigi þær við­ræður að skila árangri sé „nauð­syn­legt að sam­komu­lag náist við helstu kröfu­hafa um veru­lega nið­ur­fell­ingu skulda". Ef samn­ingar um nið­ur­fell­ingu skulda nást ekki gæti komið til greiðslu­falls á skuldum sveit­ar­fé­lags­ins.

RÚV greindi frá því fyrr í dag að Reykja­nes­bær hefði ekki enn náð sam­komu­lagi við kröfu­hafa sína. Í frétt RÚV segir að enn sé langt í land.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórn

AðsentSveitarstjórn

Guðlaug Kristjánsdóttir

Frá vöxtum til vaxtar – við­snún­ingur í Hafn­ar­firði

Árið 2016 eru að verða vatna­skil í rekstri Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar. Stærsta fréttin er eflaust sú að bær­inn er að greiða niður lán án þess að stofna til nýrra, í fyrsta skipti síðan að minnsta kosti 2002. Það var tími til kom­inn. Á yfir­stand­andi ári var staðan orðin sú að fjár­magns­gjöld (kostn­aður vegna lána) voru nán­ast á pari við öll launa­gjöld í...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár