Reykjanesbær þarf „verulega niðurfellingu skulda“ til að forðast greiðsluþrot

Reykja­nes­bær hefur hafnað beiðni Reykja­nes­hafnar, sem barst 2. októ­ber síð­ast­lið­inn, um að greiða skuld hafn­ar­innar sem er á gjald­daga 15. októ­ber næst­kom­andi. Ákvörðun um það var tekin á fundi bæj­ar­ráðs í dag. Í kjöl­farið hefur hafn­ar­stjórn Reykja­nes­hafnar óskað efyir greiðslu­fresti og kyrr­stöðu­tíma­bili frá kröfu­höfum sínum til 30. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Reykja­nes­bær á hefur ekki fjár­hags­lega getu til að hlaupa undir bagga með Reykja­nes­höfn, en sveit­ar­fé­lagið er í ábyrgð fyrir skuldum hafn­ar­innar. Það er sem stendur í við­ræðum við helstu kröfu­hafa sína um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu. Eigi þær við­ræður að skila árangir er "nauð­syn­legt að sam­komu­lag náist við helstu kröfu­hafa um veru­lega nið­ur­fell­ingu skulda". Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem sveit­ar­fé­lagið hefur sent til Kaup­hallar Íslands.

Þar segir einnig: "Náist ekki samn­ingar við kröfu­hafa um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu bæj­ar­fé­lags­ins og stofn­ana þess verður sam­kvæmt sveita­stjórn­ar­lögum óskað eftir því að bæj­ar­fé­lag­inu verði skipuð fjár­hags­stjórn."

Skuldsettasta sveitarfélag landsins í miklum vanda

Kjarninn greindi frá því 3. októ­ber að Reykja­nes­höfn hefði form­lega óskað eftir fjár­magni frá Reykja­nesbæ til að geta staðið við greiðslur lána sem eru á gjald­daga 15. októ­ber næst­kom­andi. Á meðal þess sem höfnin þarf að greiða af eru tveir skulda­bréfa­flokkar. Þetta kom fram í

til­kynn­ingu til Kaup­hallar

, en umrædd skulda­bréf eru skráð þar. Í til­kynn­ing­unni sagði einnig: „Vegna yfir­stand­andi vinnu við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Reykja­nes­bæjar er óvissa um mögu­leika Reykja­nes­bæjar til að fjár­magna greiðsl­urnar. Því getur komið til greiðslu­falls á skuld­bind­ingum Reykja­nes­hafnar.“

Reykja­nes­bær, er skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014. Skuld­irnar eru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­leiðis í and­stöðu við lög og getur illa séð af fé til að borga skuldir Reykja­nes­hafnar, sem skuldar rúma sjö millj­arða króna, aðal­lega vegna upp­bygg­ingu Helgu­vík­ur­hafnar. Tekjur á móti þeim skuldum sem stofnað var til eru litlar en reiknað var með að þær myndu að mestu leyti koma frá stór­iðju sem átti að byggj­ast upp á svæð­inu og nýta þjón­ustu hafn­ar­innar. Þau stór­iðju­á­form hafa enn sem komið er ekki orðið að veru­leika.

Á fimmtu­dag var útkomu­spá Reykja­nes­bæjar fyrir árið 2015 birt í Kaup­höll­inni, en hún var tekin fyrir í bæj­ar­ráði sveit­ar­fé­lags­ins í sama dag. Samkvæmt henni verður sam­an­dregin rekstr­ar­nið­ur­staða nei­kvæð um 716 millj­ónir króna á árinu, sem er um 300 millj­ónum krónum verra en áætl­anir gerðu ráð fyrir. A-hlut­inn, sem er grunn­rekstur sveit­ar­fé­lags­ins, mun verða rek­inn með 725 millj­óna króna tapi, en áætl­anir gerðu ráð fyrir 514 milljón króna tapi. Sam­an­lag­aður rekstur A- og B-hluta, sem er aðal­lega Reykja­nes­höfn og Fast­eignir Reykja­nes­bæjar, mun verða rek­inn með 716 milljón króna tapi en áætl­anir höfðu gert fyrir að tapið yrði 411 millj­ónir krona.

Thorsil gat ekki greitt umsamin gjöld

Í DV í vik­unni

var greint frá því að Reykja­nes­höfn hefði gefið Thorsil, sem ætlar sér að byggja kís­il­málm­verk­smiðju í Helguvík, greiðslu­frest á gatna­gerð­ar­gjöldum vegna lóð­ar­innar undir verk­smiðj­una. Gjöldin áttu að greið­ast 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en gjald­dag­anum var frestað til 15. des­em­ber. Hákon Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Thorsil, vildi ekki upp­lýsa um hversu háa upp­hæð er um að ræða. Ljóst er að litlar tekjur Reykja­nes­hafnar, sem hún þarf til að geta staðið við greiðslur af lánum, aukast ekki á meðan að stærsti við­skipta­vinur hennar greiðir ekki umsamin gjöld á réttum tíma.

Bygging verk­smiðju Thorsil er mjög umdeild í Reykja­nesbæ og í ágúst sam­þykkti bæj­ar­ráð sveit­ar­fé­lags­ins að efna til íbúa­kosn­ingu í nóv­em­ber vegna hennar. Samhliða var hins vegar sam­þykkt að íbúa­kosn­ingin yrði bind­andi og Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, hefur sagt að nið­ur­staða hennar skipti í raun engu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár