Hægir á hækkun leiguverðs: Svona hefur fasteigna- og leiguverð þróast frá 2011

Fast­eigna­verð og leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um ríf­lega 40 pró­sent frá árs­byrjun 2011 en fast­eigna­verð hefur að und­an­förnu hækkað mun hraðar.

Á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 9,3 pró­sent. Á sama tíma­bili hefur leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 2,5 pró­sent, sam­kvæmt gögnum Þjóð­skrár um fast­eigna- og leigu­mark­aði. Yfir lengra tíma­bil, eða frá árs­byrjun 2011, hefur verð fast­eigna og leigu þó hækkað nán­ast jafn mikið, en hægt hefur á hækkun leigu­verðs að und­an­förnu.

Þjóðskrá Íslands birti í vik­unni upp­lýs­ingar um fast­eigna­verð og leigu­verð í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Íbúða­verð hækk­aði milli mán­aða um 1,2 pró­sent en leigu­verð um 0,3 pró­sent.

Línu­ritið sýnir þróun leigu­verðs og íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inum eins og það birt­ist í mæl­ingum Þjóð­skrár, sem heldur úti vísi­tölum um báða mark­aði. Eftir hækk­anir leigu­verðs­vísi­töl­unnar umfram fast­eigna­verðs­vísi­töl­una þá hefur sú síðar nefnda nú tekið fram úr. Eins og sjá má á mynd­inni, þá nema verð­hækk­anir ríf­lega 40 pró­sentum á þessu tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár