Hreint útstreymi króna vegna haftalosunar gæti orðið fjórðungur af landsframleiðslu

Hreint útstreymi króna í kjöl­far upp­gjörs slita­búa föllnu bank­anna gæti numið 24 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Auk þess gætu mögu­leg áhrif vegna útstreymis aflandskróna verið allt að 14 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Því er ljóst að upp­gjör búanna og losun hafta mun að óbreyttu valda miklum þrýst­ingi á gengi íslensku krón­unnar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýju Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands sem birt var í gær.

Upp­haf­lega átti að birta ritið í síð­ustu viku, en hætta var við það með litlum fyr­ir­vara. Til stóð að birta við­auka með rit­inu, en ekki tókst að ljúka mati á und­an­þágu­beiðnum fyrir birt­ing­ar­dag, sem var áætl­aður 6. októ­ber upp­haf­lega. Í við­auk­anum við ritið átti að greina frá til­lögum kröfu­hafa um hvernig þeir hygð­ust upp­fylla stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda og mati á heild­ar­á­hrifum mögu­legra nauða­samn­inga á grund­velli þeirra. Mat á und­an­þágu­beiðnum ein­stakra búa gömlu bank­anna liggur hins vegar ekki fyrir og því var birt­ingu við­aukans frestað um óákvæðin tíma.

Mikið útstreymi


Það er þó fjallað um þau stóru skref sem framundan eru í losun fjár­magns­hafta í rit­inu. Þar segir meðal ann­ars að „hreint útstreymi króna gæti numið 24 pró­sent af lands­fram­leiðslu auk mögu­legra áhrifa vegna útstreymis aflandskróna, allt að 14 pró­sent af lands­fram­leiðslu“. Útstreymið gæti því sam­tals numið um 38 pró­sent af lands­fram­leiðslu, en hún var 1.989 millj­arðar króna í fyrra.

Kröfu­hafar Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa þegar lagt fram til­lögur um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­skatts. Samtals eiga þær að nema 334 millj­örðum króna. Í Fjár­mála­stöð­ug­leika­rit­inu segir að unnið sé að því að „ yfir­fara til­lögur allra búa í slitum og meta hvort skil­yrðum um stöð­ug­leika sé mætt hjá hverju og einu. Það er þó ljóst að komið verður í veg fyrir nei­kvæð áhrif á gengi og gjald­eyr­is­forða og hrein erlend staða þjóð­ar­bús­ins mun batna. Greiðsla stöð­ug­leika­fram­lags mun hafa mikil áhrif á pen­inga­magn í umferð að óbreyttu og því er mik­il­vægt að ráð­stafa fram­lag­inu með hlið­sjón af því og þannig að stöð­ug­leika sé ekki ógnað“.

Matið liggur ekki fyrir


Seðla­bank­inn hafði sagt að við­auki yrði með Fjár­mála­stöð­ug­leika­rit­inu sem myndi inni­halda heild­stæða grein­ingu á áhrifum slita búanna á grund­velli nauða­samn­inga með stöð­ug­leika­skil­yrðum ­ yrðu á þjóða­búið, greiðslu­jöfnuð, rík­is­sjóð og fjár­mála­stöð­ug­leika. Ekki reynd­ist hægt að birta þann við­auka þar sem nið­ur­staða mats­ins liggur ekki fyrir.

Í rit­inu segir: „Það er þó ljóst að nei­kvæðum áhrifum á gengi og gjald­eyr­is­forða verður eytt enda for­senda þess að und­an­þágur verði veittar. Þá mun und­ir­liggj­andi erlend skulda­staða þjóð­ar­bús­ins lækka og gæti hún numið 16 -18 pró­sent af lands­fram­leiðslu eftir því hvernig hin end­an­lega nið­ur­staða mun líta út. Skuldir rík­is­sjóðs munu einnig lækka en útfærsla þess er háð því að ráð­stöfun stöð­ug­leika­fram­lags raski ekki efna­hags­legum stöð­ug­leika. Þá gæti lausa­fjár­staða bank­anna eitt­hvað þrengst en innan marka sem bank­arnir ráða við gæti þeir að því að veikja hana ekki um of með of mik­illi útlána­aukn­ingu á næstu mán­uðum. Seðla­bank­inn mun birta nán­ari grein­ingu á ofan­greindum þáttum þegar nið­ur­staða liggur fyrir“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár