Karolina Fund: Þróa kennsluvef fyrir hestamenn byggðan á hugmyndum föður síns

Reidmenn.com er sam­vinnu­verk­efni fjöl­skyldu Reynis Aðal­steins­sonar. Verk­efn­is­stjórn er aðal­lega í höndum Soffíu Reyn­is­dóttur, marg­miðl­un­ar­hönn­uðar, sem með stuðn­ingi systk­ina sinna, vina og vanda­manna vinnur að því að þróa kennslu­vef fyrir hesta­menn byggðan á hug­mynda­fræði föður síns. Kjarninn hitti Soffíu Reyn­is­dóttur og tókum hana tali.

https://vimeo.com/115513188

Segðu okkur frá verk­efn­inu sem þið eruð að hóp­fjár­magna á Karolina Fund?

"Verk­efnið Reidmenn.com er sam­vinnu­verk­efni fjöl­skyld­unnar. Við systk­inin urðum þeirrar gæfu aðnjót­andi að alast upp á heim­ili hug­sjóna­manns. Alla ævi höfum við tekið þátt í skemmti­legum verk­efnum sem unnin hafa verið af hug­sjón og vilja til að læra og verða betri.

Þetta lærðum við af föður okkar, hann vakn­aði snemma á morgn­ana og var sestur við skriftir fyrir allar aldir til að festa nýjar hug­myndir á blað. Hann var alltaf á undan sinni sam­tíð og með hug­ann við nýja hluti. Við erum núna að halda áfram þeirri vinnu, fram­kvæma það sem við vorum að vinna að með honum þegar hann féll frá. Koma á fram­færi hug­sjónum sem okkur eru í blóð borin og við ólumst upp við.

[caption id="attachment_40465" align="alignnone" width="683"] Reynir Aðal­steins­son.[/caption]

Verk­efnið reid­menn.com á sér samt langa sögu, þróun efn­is­ins nær ára­tugi aftur í tím­ann og gegn um árin hefur fjöldi manns komið að því með einum eða öðrum hætti með Reyni og fjöl­skyldu hans. Við fengum styrk frá Fram­leiðni­sjóði sem hjálp­aði mikið og við gátum sett verk­efnið í gang fyrir alvöru en það er gríð­ar­lega umfangs­mikið svo við ákváðum að setja af stað söfnun á Karolina Fund. Það er heil­mikil mynd­vinnsla og svo ekki síst þýð­ingar á fleiri tungu­mál svo vef­ur­inn nýt­ist hesta­mönnum erlendis líka. Ef okkur gengur vel að fjár­magna þá getum við unnið þessa þætti hraðar og aukið við. Við erum nefni­lega með fulla kistu af hug­myndum að nýju efni sem okkur langar að vinna og setja á vef­inn.

Hvert fram­lag hjálpar og eftir því sem okkur gengur betur að fjár­magna þeim mun meira getum við gert og þeim mun öfl­ugri verður vef­ur­inn fyrir not­endur."


Nota hestvænar aðgerðir við tamningar og þjálfun


Hvernig virkar þessi kennslu­vefur og hver er hug­mynda­fræðin á bak­við hann?

"Reidmenn.com er kennslu­vefur fyrir hesta­menn byggður á hug­mynda­fræði Reynis Aðal­steins­sonar. Vefurinn mun inni­halda stig­skipt náms­efni, eitt­hvað fyrir alla, byrj­endur sem lengra komna og upp­lýs­ingar um kenn­ara, nám­skeið og staði. Við viljum gera það auð­velt að finna það sem hentar hverjum og einum og hjálpa reið­kenn­urum að koma sér á fram­færi.

Sú hug­mynda­fræði sem liggur að baki er að nota hest­vænar aðferðir við tamn­ingar og þjálfun; létt­leika, næmni og nákvæmni í vinnu­brögðum og sam­skiptum við hesta og alltaf að hafa eðli og skynjun hests­ins í huga. Við viljum nýta gamlar hefðir í bland við nútíma þekk­ingu, nýta það besta af gömlu og nýju, læra meira og leit­ast við að bæta sam­band manns og hests."

Hvernig sérðu fyrir þér að kennslu­vef­ur­inn muni nýt­ast fólki?

"Vefurinn á að geta nýst kenn­urum sem kennslu­tæki, nem­endum sem upp­spretta fróð­leiks svo þeir geti annað hvort und­ir­búið sig fyrir reið­tíma hjá kenn­ara og ef þeir hafa ekki aðgang að reið­kenn­ara geti samt fræðst og æft sig og orðið betri hesta­menn.

Það eru svo margir sem stunda hesta­mennsku en hafa ekki tök á að fara í skóla til að læra það en vilja samt verða betri reið­menn. Við viljum gera fróð­leik aðgengi­legan fyrir alla."

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár