Kínversk stjórnvöld refsa 197 einstaklingum fyrir „orðróm“ á netinu

Kínversk stjórn­völd hafa ekki aðeins brugð­ist við hruni á hluta­bréfa­mark­aði heima fyrir og versn­andi hag­tölum, með örv­un­ar­að­gerðum, heldur bein­ast nú spjótin að ein­stak­lingum sem eru sagðir hafa verið að breiða út „orðróm“ um slæma stöðu kín­verska hag­kerf­is­ins. Samtals liggja 197 ein­stak­lingar undir grun yfir­valda, sem heita þungum refs­ingum að því er fram kemur á vef New York Times. Engar frek­ari upp­lýs­ingar fást um málið, að því er fram kemur á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC, en rík­is­fjöl­mið­ill­inn Xinhua greindi fyrst frá mál­inu.

Blaða­menn og starfs­menn kaup­hall­ar­innar í Shanghai eru á meðal þeirra sem kín­versk stjórn­völd telja að hafi kerf­is­bundið skapað nei­kvæðan orðróm til þess að skaða ímynd kín­verska hag­kerf­is­ins.

Þá telja stjórn­völd einnig að þessi hópur manna hafa borið út ósannan orðróm um spreng­ing­arnar í Tianjin, en þá dóu 150 manns í öfl­ugum spreng­ingum á iðn­að­ar­svæði í þess­ari næst stærstu borg Kína. Mörg hund­ruð til við­bótar slös­uð­ust, en rann­sókn á orsök spreng­ing­anna stendur enn yfir.

Samkvæmt umfjöllun BBC geta ein­stak­ling­arnir átt von á því að fá allt að þriggja ára fang­elsi, sam­kvæmt lögum frá 2013, en eins og áður segir hafa ekki frek­ari upp­lýs­ingar verið veittar um meintar sakir eða rann­sókn­ina.


China pun­is­hes 197 over stock 'rumours' http://t.co/uRRoPNgIez


— BBC News (World) (@BBCWorld) August 30, 2015

Mikill glund­roði hefur ein­kennt verð­bréfa­mark­aði í Kína í sumar, og hefur virði hluta­bréfa hríð­fallið á und­an­förnum mán­uðum eftir miklar hækk­anir mán­uð­ina á undan. Þá hafa aðgerðir stjórn­valda í Kína, til þess að koma á stöð­ug­leika á mark­aðnum, ekki gengið vel. Meðal þess sem gripið var til, var að skylda hlut­hafa og fjár­festa til þess að kaupa hluta­bréf og banna sölu á bréfum tíma­bundið. Þetta virk­aði ekki vel, og hafa kín­versk stjórn­völd nú hætt við áætl­anir sem byggðu á þessum aðferðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár