Peningarnir streyma inn og út í Grikklandi: Endurgreiða AGS og Seðlabanka Evrópu

Grísk stjórn­völd fengu í dag 7,2 millj­arða evra lán frá Evr­ópu­sam­band­inu, sem sam­þykkt var að veita síð­ast­lið­inn föstu­dag. Nær allri upp­hæð­inni var sam­stundið varið í að end­ur­greiða lán sem fallin voru á gjald­daga, meðal ann­ars ríf­lega tveggja millj­arða greiðslu til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS). Fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­mála hjá AGS stað­festi í dag að greiðsla hafi borist frá Grikk­landi. Skuldir Grikk­lands gagn­vart AGS eru því ekki lengur skil­greindar sem gjald­fallnar, eins og þær hafa verið frá 30. júní. Þann dag greiddu grísk stjórn­völd ekki um 1,6 millj­arða af láni frá AGS og landið varð fyrst þró­aðra ríkja til að standa ekki við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart AGS.

Á vef The Guardian er greint frá því að Grikkir hafi auk þess end­ur­greitt Seðla­banka Evrópu um 3,5 millj­arða evra lán í dag, sem einnig var fallið á gjald­daga. Til við­bótar greiddu Grikkir seðla­bank­anum um 700 millj­ónir evra í drátt­ar­vexti. End­ur­greiðslan skiptir miklu máli fyrir áfram­hald­andi veru Grikk­lands í evru­sam­starf­inu.


Grískir bankar opn­uðu í morgun eftir að hafa verið lok­aðir í þrjár vikur. Biðraðir mynd­uð­ust við útibú bank­anna. Fjár­magns­höft eru enn við lýði í land­inu og er hverjum ein­stak­lingi heim­ilt að taka út aðeins 420 evrur á viku, jafn­virði um 62 þús­und króna. Gríska kaup­höllin er áfram lokuð.


Grikk­land og kröfu­hafar komust að sam­komu­lagi snemma í síð­ustu viku um miklar aðhalds­að­gerðir í Grikk­landi gegn frek­ari lána­fyr­ir­greiðslum upp á um 86 millj­arða evra. Grikkir skuld­binda sig meðal ann­ars til þess að gera veiga­miklar breyt­ingar á virð­is­auka­skatt­kerf­inu, öðrum skatt­stofnum og líf­eyr­is­kerf­inu auk meiri­háttar einka­væð­ingar. Eins og margoft hefur komið fram þá hefur ferlið verið erfitt, evru­sam­starf Grikkja hefur hangið á blá­þræði og alls­herjar greiðslu­fall rík­is­ins verið yfir­vof­andi. Vonir standa til að nýgert sam­komu­lag dugi til að koma gríska efna­hags­kerf­inu á réttan kjöl en efa­semd­ar­menn eru margir, meðal ann­ars sér­fræð­ingar AGS og stjórn­málafor­ystan í Grikk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár