AGS gagnrýnir samkomulagið við Grikkland harðlega - gæti sett allt í uppnám

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn varar á ný við því að Grikk­land þurfi mun meiri afskriftir skulda en lán­ar­drottnar þeirra bjóða þeim nú upp á. Afskriftir á skuldum er eina leiðin til þess að gera skuld­irnar sjálf­bærar. Ný skýrsla sem sjóð­ur­inn gerði og var opin­beruð í gær­kvöldi inni­heldur harða gagn­rýni á Evr­ópu­sam­bandið.

Skýrslan sem var birt í gær­kvöldi var afhent fjár­mála­ráð­herrum evru­ríkj­anna, evru­hópnum, um helg­ina, áður en gengið var frá sam­komu­lagi við Grikk­land. Evru­ríkj­unum var því ljóst að sjóð­ur­inn væri mjög ósáttur við sam­komu­lagið áður en gengið var frá því.

Þar kemur fram að Evr­ópu­sam­bands­ríki þurfi að gefa Grikk­landi 30 ár til að end­ur­greiða allar skuldir sínar við ESB, og þá þurfi að fram­lengja veru­lega í lánum. Ef það verður ekki gert munu lán­ar­drottnar Grikk­lands þurfa að sætta sig við mjög miklar nið­ur­fell­ingar skulda.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi mikli ágrein­ingur milli AGS og ESB, lán­ar­drottna Grikk­lands, er opin­ber­aður þótt rætt hafi verið um hann fyrr og skjölum frá AGS lekið á síð­ustu vikum sem benda til þessa.

BBC hefur eftir hátt­settum emb­ætt­is­manni innan Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins að sjóð­ur­inn muni aðeins taka þátt í þriðju neyð­ar­lána­veit­ing­unni til Grikkja ef Evr­ópu­sam­bandið setur fram skýra áætlun. Sam­komu­lagið sem nú er á borð­inu er alls ekki nóg.

Síðar í dag mun gríska þingið taka afstöðu til fjölda frum­varpa sem gera breyt­ingar á efna­hags­kerf­inu í sam­ræmi við það sem evru­ríkin kröfð­ust af Grikk­landi. Talið er að skýrsla AGS muni gera Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, enn erf­ið­ara fyrir að fá gríska þingið til að sam­þykkja frum­vörpin.

Greining AGS bendir á að skuldir Grikkja nálgist nú að verða 200 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu á næstu tveimur árum. Það sé með öllu ómögu­legt. Þá gagn­rýnir sjóð­ur­inn áætl­anir um að Grikkir eigi að geta verið með 3,5% afgang af vergri lands­fram­leiðslu næstu ára­tug­ina, eins og krafa er um í sam­komu­lag­inu. Sjóð­ur­inn segir hag­vaxt­ar­á­ætl­anir óraun­sæjar og segir að stjórn grísku bank­anna sé hörmu­leg og ekki sé verið að taka á þeim málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár