Grikkir þurfa að ráðast í gríðarlegar breytingar og niðurskurð strax

Grikkir munu gera breyt­ingar á virð­is­auka­skatt­kerf­inu, öðrum skatt­stofnum og á líf­eyr­is­kerf­inu strax í dag og á morgun. Þeir munu einnig ráð­ast í nið­ur­skurð­ar­að­gerðir fyrir mið­viku­dag­inn.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu um sam­komu­lagið sem gert var milli Grikkja og hinna evru­ríkj­anna í morgun. Aðeins þegar þeir hafa lokið við laga­setn­ingu munu þjóð­þing hinna ríkj­anna koma saman til að sam­þykkja neyð­ar­lán. Aðgerð­irnar eru sagðar nauð­syn­legar til þess að byggja upp traust á milli samn­ings­að­il­anna.

Þá kemur fram í yfir­lýs­ing­unni að Grikkir þurfi að gera enn meiri breyt­ingar en kveðið er á um í til­lögum þeirra sjálfra. Þeir þurfi að setja fram tíma­töflu um breyt­ing­arnar með skýrum og mæl­an­legum mark­miðum.

Grikkir þurfa að ráð­ast í „metn­að­ar­fullar“ breyt­ingar á líf­eyr­is­kerf­inu fyrir sept­em­ber­lok. Þeir þurfa einnig að ráð­ast í miklar umbætur á hag­kerf­inu. Meðal þess sem tekið er fram í skjal­inu er að þeir þurfi að hafa versl­anir opnar á sunnu­dögum, þeir þurfi að breyta reglum um eign­ar­hald á apó­tekum, mjólk­ur­búðum og bak­ar­íum, auk þess sem þeir þurfa að gera ferju­sigl­ingar frjálsar. Þeir þurfa að einka­væða raf­orku­flutn­ings­kerfið og gera breyt­ingar á kjara­samn­ingum og við­ræðum. Þá þurfa þeir að breyta fjár­mála­kerf­inu og koma í veg fyrir afskipti stjórn­mála­manna, sér­stak­lega af ráðn­ingum.

Þá verða eignir gríska rík­is­ins settar í sjóð sem mun hafa umsjón með einka­væð­ingu. Féð sem fæst verður notað til þess að borga nýju neyð­ar­lánin til baka og grynnka á öðrum skuldum. Áætlað er að 50 millj­arðar evra fáist, helm­ingur fari í borgun skulda og hinn helm­ing­ur­inn verði not­aður í fjár­fest­ingar. Grikkir munu sjálfir hafa umsjón með sjóðnum, sem er eitt fárra atriða sem Grikkir fengu fram­gengt í sam­komu­lag­inu, en upp­haf­lega átti sjóð­ur­inn að vera stað­settur í Lúx­em­borg. Einnig þurfa Grikkir að birta fyrstu til­lögur sínar að miklum umbótum á stjórn­kerf­inu fyrir 20. júlí. Þeir eiga að minnka kostnað við stjórn­kerfið og styrkja emb­ætt­is­manna­kerfi.

Grikkir skuld­binda sig til þess að ráð­færa sig við Seðla­banka Evrópu, fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn um öll laga­frum­vörp sem tengj­ast þessum málum. Þetta þurfa þeir að gera áður en stjórn­völd fara með frum­vörpin fyrir þingið eða fyrir þjóð­ina.

Þeir skuld­binda sig líka til þess að end­ur­skoða öll lög sem þeir hafa sam­þykkt sem fara gegn síð­asta sam­komu­lagi, sem var tíma­bundið frá febr­úar síð­ast­liðnum. Und­an­tekn­ingin eru lög sem sam­þykkt voru í mars og eiga að tryggja fátækum Grikkjum ókeypis raf­magn og mat. Þetta gæti þýtt að þeir þurfi til dæmis að reka aftur skúr­inga­fólk sem var ráðið aftur á dramat­ískan hátt.

Ef allt gengur eftir eiga Grikkir að fá tíu millj­arða evra strax til þess að gera grískum bönkum kleift að opna á ný.

Þá er í yfir­lýs­ing­unni fjallað um það að efa­semdir séu um sjálf­bærni skuld­anna, en úti­lokað er jafn­framt að ráð­ist verði í stór­fellda nið­ur­fell­ingu skulda. Hins vegar verði tekið til skoð­unar að lengja tíma­bil þar sem þeir þurfi ekki að borga til baka, og þar með lengja í lánum.

Að lokum kemur svo fram í yfir­lýs­ing­unni að ef öll skil­yrði yfir­lýs­ing­ar­innar verða upp­fyllt muni verða ráð­ist í aðgerðir til að örva hag­vöxt og skapa störf á næstu þremur til fimm árum. Þetta verður gert með því að veita 35 millj­örðum evra í ýmsar fjár­fest­ingar. Þá verður lagt til að millj­arður evra fari strax til Grikk­lands til að örva fjár­fest­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár