Gríska þingið samþykkti samninginn - óeirðir á götum Aþenu

Gríska þingið hefur sam­þykkt nýtt sam­komu­lag við evru­ríkin, en frum­vörp sem eru for­senda þess að sam­komu­lagið taki gildi voru sam­þykkt eftir miklar og harðar umræður í allt kvöld. Á meðan eru óeirðir í Aþenu.

Þingið sam­þykkti með 229 atkvæðum. 64 sögðu nei og 6 sátu hjá. 38 þing­menn stjórn­ar­flokks­ins Syriza voru meðal þeirra sem höfn­uðu sam­komu­lag­inu en 124 studdu Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra og for­mann flokks­ins.

Meðal þeirra sem höfn­uðu sam­komu­lag­inu var Yanis Varoufakis, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, sem hætti störfum í síð­ustu viku og hefur síðan verið mjög gagn­rýn­inn á lán­ar­drottna lands­ins. Forseti þings­ins, Zoe Konstantopoulou, sagði líka nei.

Mótmæli fyrir utan þing­húsið í Aþenu og víðar breytt­ust í óeirðir og bens­ín­sprengjum var kastað að lög­reglu­mönnum, sem svör­uðu með táragasi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár