Biðraðir í grískum bönkum eftir þriggja vikna lokun

Bankar í Grikk­landi opn­uðu á ný í morgun eftir að hafa verið lok­aðir í þrjár vikur. Biðraðir mynd­uð­ust víða fyrir opnun.

Þrátt fyrir að bank­arnir hafi opnað er starf­semi þeirra áfram veru­lega skert. Það eru enn höft og við­skipta­vinir bank­anna mega bara taka út 420 evrur á viku, sem er örlítil breyt­ing á hámark­inu sem verið hefur, 60 evrur á dag. Það verður ekki hægt að leysa út ávís­anir og ekki verður hægt að taka út reiðufé í öðrum löndum en Grikk­landi, aðeins hægt að borga með kortum. Þá eru líka hömlur á opnun nýrra banka­reikn­inga.

Gríska kaup­höllin mun hins vegar ekki opna á ný í dag, en henni var lokað á sama tíma og bönk­unum. Talið er að hún muni opna innan fárra daga.

Louka Katseli, for­maður sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja í Grikk­landi, sagði við Skai sjón­varpsst­söð­ina í gær­kvöldi að nú væri tím­inn til að hjálpa gríska hag­kerf­inu með því að fólk mætti í banka í dag og legði inn pen­inga. „Ef við tökum pen­inga af heim­ilum okkar, þar sem þeir eru ekki öruggir, og leggjum þá inn í bank­ana munum við styrkja lausa­fjár­stöð­una.“

Virð­is­auka­skattur, meðal ann­ars á mat og almenn­ings­sam­göngur, er meðal þess sem hækkar frá og með deg­inum í dag, úr 13 pró­sentum í 23 pró­sent.

Í dag eiga Grikkir einnig að borga 3,5 millj­arða evra til baka til Seðla­banka Evrópu. Að auki borga þeir 700 millj­ónir evra í vexti. Þeim hefði verið ómögu­legt að greiða þessa upp­hæð til baka ef ekki hefði verið samið í síð­ustu viku. Bráða­birgða­lán til Grikkja upp á sjö millj­arða evra ætti nú að ná til þeirra í tæka tíð áður en þeir þurfa að borga Seðla­banka Evrópu til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár