Karolina Fund: Ellismellir skella í sumarsmelli

Tónar og Trix er hópur eldri borg­ara í Þor­láks­höfn sem hitt­ist viku­lega yfir vetr­ar­tím­ann til þess að syngja saman og stundum spila á hljóð­færi, semja eða vinna með tón­list á annan skap­andi hátt. Þátt­tak­endur í þessum hóp eru 20 og hafa mjög mis­jafnan bak­grunn í tón­list, sumir hafa sungið eða spilað á hljóð­færi áður á meðan aðrir eru að stíga sín fyrstu skref í tón­list. Við sett­umst niður með Ásu Berg­lindi Hjálm­ars­dóttur og spurðum hana út í starfið.


Eldri borgarar í Ölfusi


Hvað eru þið búin að vinna lengi saman í tón­list sem hópur og hvaðan kom hug­myndin að þessu verk­efni?

"Tónar og Trix hófu göngu sína vorið 2007 á nám­skeiði sem bar yfir­skrift­ina: „Skapandi tón­list­ar­nám­skeið fyrir eldri borg­ara í Ölfusi“, en það var hluti af loka­verk­efni mínu frá Lista­há­skóla Íslands og átti að standa yfir í tvær vikur. Þessar tvær vikur voru alveg stór­skemmti­legar og gef­andi bæði fyrir mig og þau svo ákveðið var að halda þessu starfi áfram. Ástæðan fyrir því að ég valdi Þor­láks­höfn var af því að ég er upp­alin þar og það er svo gott að geta gefið til baka í sam­fé­lag sem gaf manni svo mikið á upp­vaxt­ar­ár­unum.

Á þessum átta árum sem nú eru liðin hafa Tónar og Trix gert ótrú­lega hluti saman og verið í mús­síkal­skri ævin­týra­för þar sem þau hafa feng­ist við ýmis­legt sem þau töldu sig ef til vill fæst eiga eftir að gera nú á sínum efri árum."


Syngja lög úr öllum áttum


Hvernig tón­list eru þið að ein­beita ykkur mest að?

"Það skemmti­lega er að við erum ekki að ein­beita okkur að neinni sér­stakri teg­und af tón­list, heldur höfum við sungið lög úr öllum áttum. Bæði þessi gömlu góðu sem allir þekkja og svo líka ný lög sem hafa verið að koma út með hinum ýmsu lista­mönnum síð­ustu árin. Vorið 2014 héldu Tónar og Trix til dæmis sam­stöðu- og bar­áttu­tón­leika til þess að vekja athugli á skorti á hjúkr­un­ar­rýmum í Þor­láks­höfn. Þar var þemað ný íslensk dæg­ur­lög og höfðum við popp­hljóm­sveit með okkur. Þá fluttum við meðal ann­ars lög eftir hljóm­sveit­ina Valdimar, Of Monsters and Men og Ásgeir Trausta. Þeim finnst flestum alveg jafn skemmti­legt að syngja þau lög eins og þessi gömlu þrátt fyrir að þau séu mögu­lega erf­ið­ari til að byrja með, en þá er svo gaman að takast á við þau og læra eitt­hvað nýtt."

Þið eruð búin að vinna með tón­list­ar­mönnum úr ýmsum áttum, segðu mér aðeins frá því?

"Núna síð­ustu mán­uði höfum við aldeilis staðið í stór­ræðum því Tónar og Trix eru búin að taka upp plötu sem fyr­ir­hugað er að komi út nú í lok maí. Í þessu verk­efni eru Tónar og Trix umvafin ótrú­lega flottu og hæfi­leik­a­ríku tón­list­ar­fólki en þau eru með frá­bæra hljóm­sveit sem spilar með og einnig gesta­söngv­ara og hljóð­færa­leik­ara sem öll eru lands­mönnum kunn. Þar má nefna Krist­jönu Stef­áns­dóttur, Sölku Sól, Unnstein Manúel, Sigtrygg Bald­urs­son og Jónas Sig. Til gam­ans má geta að móðir Jónasar er í Tónum og Trix og þau eiga lag saman mæðginin sem hóp­ur­inn söng inn á síð­ustu plötu hans og kemur nú út í nýrri útsetn­ingu á þess­ari plötu. Flest lög á plöt­unni eru þekkt dæg­ur­lög á íslensku frá mis­mun­andi tímum og í latin stíl en þar er líka að finna lag og texta sem Tónar og Trix bjuggu til í sam­ein­ingu og lag eftir Erlu Mark­ús­dóttur sem er „Trixari“, en þetta er í fyrsta sinn sem hún sýnir þessa hæfi­leika sína opin­ber­lega."

[caption id="attachment_28227" align="alignnone" width="632"] Á meðal þeirra sem hóp­ur­inn hefur unnið með eru Salka Sól og Unnstein Manúel.[/caption]

Tónar og Trix eru með síðu á karolina­fund.com þar sem hægt er að hálpa þeim að gefa út plöt­una og fá í staðin til dæmis ein­tak af plöt­unni eða miða á útgáfu­tón­leik­ana þeirra. En þau munu, ásamt öllum þeim sem koma að plöt­unni, halda tvenna útgáfu­tón­leika, í Þor­láks­kirkju 31. maí og í Gamla bíó 2. júní. Við hvetjum fólk á öllum aldri til þess að koma og eiga með okkur þessa stóru stund þegar við fögnum fyrstu plöt­unni okkar á þessum tón­leikum.

Facebook síða þeirra er hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár