Hagvaxtarspár Seðlabanka og Hagstofu Íslands nær alltaf rangar

Frá árinu 2000 hefur Seðla­banki Íslands aðeins einu sinni spáð því kór­réttu hver hag­vöxtur yrði á árinu, sé litið til fyrstu þjóð­hags­spár bank­ans ár hvert til hlið­sjónar við end­an­legan hag­vöxt sama ár. Hagstofu Íslands hefur einnig gengið erf­ið­lega að spá fyrir um hag­vöxt. Á fjórtán árum hefur spá Hag­stof­unnar, birt að sumri til, þrisvar sinnum verið rétt fyrir sama ár. Spá stofn­un­ar­innar fyrir árið á eftir, sem jafn­framt er notað við gerð fjár­laga­frum­varps­ins, hefur einu sinni verið rétt og er hag­vöxtur næsta árs oft­ast ofmetin í spánni.

Algeng­ara er þó að spár Seðla­bank­ans og Hag­stof­unnar um vöxt lands­fram­leiðslu van­meti hag­vöxt. Með­fylgj­andi tafla sýnir hvernig spárnar hafa oft­ast van­metið hag­vöxt, það er hag­vöxtur reynd­ist á end­anum vera meiri en stofn­an­irnar spáðu til um. Skekkjan hefur að með­al­tali verið 2,2 pró­sentu­stig hjá Seðla­bank­anum og 1,8 pró­sent hjá Hag­stof­unni.

Spá Of há Of lág Rétt Röng
Seðla­bank­ans 4 9 1 13
Hag­stof­unnar (sama ár) 3 8 3 11
Hag­stof­unnar (fyrir næsta ár) 7 6 1 12

 

Spá Frávik að með­al­tali (pró­sentu­stig) frá­vik að með­al­tali án 2007 (pró­sentu­stig)
Seðla­bank­ans 2,2 1,7
Hag­stof­unnar (sama ár) 1,8 1,2
Hag­stof­unnar (fyrir næsta ár) 2,9 2,4

Þrjár spár - oftast rangar


Til nán­ari útskýr­inga þá er í þess­ari grein litið til þriggja mis­mun­andi þjóð­hags­spáa. Í fyrsta lagi birtir Seðla­bank­inn spá um vöxt lands­fram­leiðslu (hag­vöxt) í rit­inu Pen­inga­mál. Ritið kemur út árs­fjórð­ungs­lega og er hér litið til hvers bank­inn spáði í fyrsta hefti hvers árs.


Dæmi: Í febr­úar 2011 var því spáð í Pen­inga­málum að hag­vöxtur á árinu 2011 yrði 2,8 pró­sent. Raunin varð 2,1 pró­sent hag­vöxtur.


Í öðru lagi eru hér skoð­aðar spár Hag­stof­unnar sem birt­ast í sum­ar­hefti Þjóð­hags­spár.


Dæmi: Í júlí 2004 spáði Hag­stofan að hag­vöxtur á árinu 2004 yrði 5,5 pró­sent. Raunin varð 8,2 pró­senta hag­vöxtur.


Í þriðja lagi, og þessi spá skiptir mestu máli fyrir stjórn­völd, er litið til þess hverju Hag­stofan spáði fyrir kom­andi ár.


Dæmi: Í júlí 2004 spáði Hag­stofan því að hag­vöxtur á árinu 2005 yrði fimm pró­sent. Raunin varð 6 pró­senta hag­vöxtur.


Síð­ast­nefnda spáin, sú fyrir kom­andi ár, er notuð við gerð fjár­laga. Fyrir stjórn­völd þá er betra að spáin van­meti hag­vöxt. Þá er lík­legra að sú áætlun sem lögð er fram í fjár­lögum, einkum tekju­hlið hins opin­bera, standi undir því sem spáð var. Ef hið öfuga ger­ist, og hag­vöxtur á árinu verður minni en spáð var, þá er lík­legra að tekjur rík­is­ins verði minni en gert var ráð fyrir í fjár­lögum.

Spár Seðlabankans

Grafið hér að neðan sýnir hvernig spár Seðla­bank­ans í árs­byrjun hafa rímað við end­an­legan hag­vöxt á ári hverju. Spá bank­ans er á lóð­rétta ásnum og hag­vöxtur á lárétta ásnum.


Dæmi: Í febr­úar 2010 spáði bank­inn því að hag­vöxtur yrði nei­kvæður á árinu 2010 um 3,4 pró­sent. Raunin varð sam­dráttur lands­fram­leiðslu um 2,9 pró­sent. Frávikið var því 0,5 pró­sentu­stig.


Hag­vöxtur, spá Seðla­bank­ans & frá­vik á árunum 2000 til 2013

|

Create infographics

Árið 2007 reynd­ist bæði sér­fræð­ingum Seðla­bank­ans og Hag­stof­unnar afar snúið. Ef til vill var það vonin um „mjúka lend­ingu“ sem gerði að verkum að spár voru langt undir raun­veru­legum hag­vexti það ár. Í árs­byrjun 2007 spáði Seðla­bank­inn því að hag­vöxtur árs­ins yrði 0,8 pró­sent. Hann end­aði á að vera nærri 10 pró­sent.

Spár Hagstofunnar

Hag­stofan birtir þjóð­hags­spá þrisvar sinnum á ári. Sú mik­il­væg­asta kemur út um mitt sumar ár hvert, og er notuð til grund­vallar fjár­lögum. Frávik á spám Hag­stof­unnar hefur verið um 1,8 pró­sent fyrir sama ár en heil 2,9 pró­sent fyrir árið á eftir.

Fyrsta grafið sýnir hvernig Hag­stof­unni hefur gengið að spá fyrir um vöxt lands­fram­leiðslu sama ár. Þegar spáin kemur út er árið sem spáð er um hálfnað.


Seinna grafið sýnir hvernig Hag­stof­unni hefur gengið að spá fyrir um hag­vöxt næsta árs. Sjö sinnum hefur hag­vöxtur verið ofmet­inn í spánum.



Mikil skekkja í fyrra?


Tölur um vöxt lands­fram­leiðslu eru til end­ur­skoð­unar í tvö til þrjú ár á eftir og eru hag­vaxt­ar­tölur fyrir árin 2012 og 2013 enn bráða­birgða­tölur. Fyrstu tölur um hag­vöxt síð­asta árs liggja enn ekki fyrir en margt bendir til að hann hafi verið ofmet­inn í spám Seðla­bank­ans og Hag­stof­unnar. Í árs­byrjun spáði Seðla­bank­inn að hag­vöxtur á árinu yrði 2,6 pró­sent. Hag­stofan spáði því árið 2013 að hag­vöxtur árið 2014 yrði 2,7 pró­sent og um síð­ast­liðið sumar hafði sú spá hækkað, talið var að vöxtur lands­fram­leiðslu yrði 3,1 pró­sent.

Erfitt að spá

Sér­fræð­ingar Seðla­bank­ans og Hag­stof­unnar vita vel að spár þeirra eru lík­leg­ast ekki hár-réttar. Þær taka mið af fjölda þátta, spám um inn­lenda eft­ir­spurn, fjár­fest­ingu, inn­flutn­ing, virði útflutn­ings svo eitt­hvað sé nefnt. Árið 2008 fjall­aði Ásgeir Dan­í­els­son, hag­fræð­ingur hjá Seðla­banka Íslands, um spá­gerð og hvernig bank­anum hefði tek­ist til þessa. Nið­ur­staða hans var sú að oft­ast væri hag­vöxtur van­met­inn í spám bank­ans. Hann skrif­aði:


„Það er erfitt að spá, sér­stak­lega um fram­tíð­ina. En samt verðum við að spá um fram­tíð­ina ef við ætlum að bregð­ast tím­an­lega við og hafa áhrif á þró­un­ina.“


Tengt efni:
Sigríður Bene­dikts­dóttir útskýrir hag­vöxt og lands­fram­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár