Sigríður Benediktsdóttir útskýrir hagvöxt og landsframleiðslu

„Lands­fram­leiðla er fram­leiðsla á allri vöru og þjón­ustu innan ákveð­ins land­svæðis yfir ákveðið tíma­bil. Við notum gjald­miðil, krónur á Íslandi, til þess að mæla lands­fram­leiðsl­una.“ Svona útskýrði Sigríður Bene­díkts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­banka Íslands, fyr­ir­bærið lands­fram­leiðslu í síð­asta þætti af Ferð til fjár á RÚV.

Að fengnu leyfi frá Helga Seljan, frétta­manni og öðrum umsjón­ar­manni þátt­anna, þá fór Sigríður með jöfn­una sem skýrir hvernig lands­fram­leiðslan er reiknuð. „Við leggjum þá saman allt það sem ein­stak­lingar neyta, allt það sem ríkið neytir og alla fjár­fest­ingu. Til þess að ná saman öllu sem við fram­leiðum innan land­svæð­is­ins þá bætum við einnig öllum útflutn­ingi við en drögum frá allt það sem við fluttum inn, því við neyttum þess en fram­leiddum það ekki,“ sagði Sigríður. Formúlan lítur þá svona út:


Verg lands­fram­leiðsla = einka­neysla + sam­neysla + fjár­fest­ing + útflutn­ingur – inn­flutn­ingur.

Mælikvarði á hagsæld

En hvers vegna er svona oft litið til lands­fram­leiðsl­unnar, bæði í fréttum og umræðum um efna­hags­mál?


„Ástæðan hvers vegna við notum lands­fram­leiðslu svona mikið er sú að hún er ákveð­inn mæli­kvarði á hag­sæld. Því meira sem við fram­leiðum af vöru og þjón­ustu, því mun meira getum við neytt. Þar af leið­andi notum við breyt­ing­una á lands­fram­leiðslu sem mæli­kvarða til að sjá breyt­ingu á okkar hag­sæld,“ skýrir Sigríður og á þar við hag­vöxt, það er breyt­ingu á lands­fram­leiðslu milli ára.


„Það er mik­il­vægt að vita að hag­vöxtur mælir bara breyt­ing­una á magn­inu á vöru og þjón­ustu en ekki verð­inu. Við erum að horfa á hversu mikið við fram­leiðum af vörum og þjón­ustu innan ákveð­ins hag­svæðis á ákveðnum tíma, og miðum það við ákveð­inn tíma áður. Þetta þýðir ein­fald­lega að ef verð­bólga er fimm pró­sent en lands­fram­leiðsla eykst um tíu pró­sent, þá má segja að hag­sæld hafi í raun auk­ist um fimm pró­sent.“

3,5% hagvöxtur árið 2013

Með öðrum orðum þá er tekið til­lit til almennra verð­lags­breyt­inga, verð­bólg­unnar svoköll­uðu, þegar hag­vöxtur er reikn­aður. Þá er lands­fram­leiðsla hvers árs færð á fast verð­lag. Í tölum Hag­stof­unnar er miðað við árið 2005 og í töfl­unni hér að neðan má bæði sjá hvernig lands­fram­leiðslan hefur breyst á föstu verð­lagi og hvernig hún hefur breyst á verð­lagi hvers árs (þegar ekki er tekið til­lit til verð­bólg­unnar).


Til dæmis nam lands­fram­leiðsla árið 2013 um 1.873 millj­örðum króna, sam­an­borið við 1.774 millj­arða árið 2012. Aukn­ingin var 5,6 pró­sent milli ára. Sé tekið til­lit til verð­bólg­unnar, og stærð­irnar færðar á fast verð­lag, þá kemur í ljós að hag­vöxt­ur­inn var jákvæður 3,5 pró­sent árið 2013. Taflan hér að neðan sýnir hag­vöxt hvers árs, frá alda­mótum til 2013.


Kjarninn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Mark­miðið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­úar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferð til fjár

SkýringFerð til fjár

Fjögur gröf sem útskýra fast­eigna­mark­að­inn

Í nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, árs­fjórð­ungs­legri skýrslu Seðla­banka Íslands, er nokkuð fjallað um þróun fast­eigna­verðs og þær hækk­anir sem orðið hafa á íbúða­verði að und­an­förnu. Þróunin á Íslandi er meðal ann­ars borin saman við önnur lönd en í skýrsl­unni segir að ekki séu merki um bólu­myndun á fast­eigna­mark­aðnum í heild. Engu að síður sé fast­eigna­verð orðið hátt á flesta mæli­kvarða í...
FréttirFerð til fjár

Vænt­ingar dvína í skugga kjara­við­ræðna

Vænt­inga­vísi­tala Gallups lækk­aði um 17 stig í apr­íl­mán­uði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísi­töl­unni milli mán­aða í tæp tvö ár. Vísi­talan fór yfir 100 stig í mars síð­ast­liðnum en vísi­talan er mæld á bil­inu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafn­margir aðspurðra neyt­enda eru bjart­sýnir og svart­sýnir á stöðu og horfir...
FréttirFerð til fjár

Per­sónu­af­slátt­ur­inn er 610.825 krónur í ár

Per­sónu­af­sláttur ein­stak­linga er 610.825 krónur fyrir árið 2015 eða 50.902 krónur að með­al­tali á mán­uði. Það er hækkun um 4.848 krónur frá árinu 2014, eða um 404 krónur á mán­uði. Hækkunin nemur 0,8% en hún er lögum sam­kvæmt í takt við verð­bólgu­þróun. Fjallað er um per­sónu­af­slátt, stað­greiðslu og trygg­inga­gjald árs­ins 2015 í grein í Tíund, frétta­blaði Rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur að...
FréttirFerð til fjár

Verð­bólgan étur kaup­mátt­inn

Hækkun verð­lags í mars­mán­uði varð til þess að kaup­máttur launa dróst saman um 0,8 pró­sent. Kaup­máttur launa, eins og hann mælist sam­kvæmt vísi­tölu Hag­stof­unnar, hafði hækkað nán­ast stans­laust í tólf mán­uði en dróst núna saman. Árs­hækkun kaup­máttar launa mælist engu að síður um 4 pró­sent, en árs­hækkun mæld­ist 5,6 pró­sent í febr­úar. Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu launa í...
FréttirFerð til fjár

Íslend­ingar eru sam­vinnu­þýð­ari en aðrir

Íslenskir stúd­entar eru sam­vinnu­þýð­ari en banda­rískir stúd­entar og leggja sig harðar fram við að halda hópa­vinnu gang­andi. Ýmsir félags­þættir benda til að Íslend­ingar sam­svari sig almennt betur í hópi fólks og séu það sem kallað er á ensku group minded á kostnað ein­stak­lings­hyggju. [caption id="attachment_26395" align="alignleft" width="139"] Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir.[/caption]Þetta sýna nið­ur­stöður rann­sóknar sem Dr. Anna Gunn­þórs­dóttir hefur unnið að...
SkýringFerð til fjár

Deilt um sam­band launa­hækk­ana og verð­bólgu

Kröfur margra stétt­ar­fé­laga í yfir­stand­andi kjara­deilum á vinnu­mark­aði hljóða upp á veru­lega hækkun launa­taxta og dæmi eru um að kröfur hljóði upp á um 20 pró­sent hækkun lægstu launa. Staðan sem uppi er á vinnu­mark­aði hefur að mati pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans verið ein helsta ástæða fyrir því að halda stýri­vöxtum óbreyttum und­an­farna mán­uði, þrátt fyrir lága verð­bólgu sem er undir 2,5...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár