Sigríður Björk og Gísli Freyr fá niðurstöðu Persónuverndar á morgun

Stjórn Per­sónu­verndar hyggst afgreiða athugun stofn­un­ar­innar á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, og Gísla Freys Val­dórs­sonar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krisjtáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, við upp­haf leka­máls­ins svo­kall­aða, á fundi sínum á morgun.

Í kjöl­far umfjöll­unar DV þann 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn um sam­skipti Sigríðar Bjarkar og Gísla Freys, sem áttu sér stað dag­inn sem fyrstu frétt­irnar um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos birt­ust, þar sem fram kom að Sigríður Björk hefði sent aðstoð­ar­manni ráð­herra tölvu­póst með grein­ar­gerð um Tony Omos, sendi Per­sónu­vernd lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum póst þar sem óskað var skýr­inga varð­andi send­ingu umræddar grein­ar­gerð­ar­innar. Bréfið var sent 19. nóv­em­ber, eða dag­inn eftir umfjöllun DV.

Kjarninn greindi frá því 27. nóv­em­ber að áður­nefndan tölvu­póst væri hvorki að finna í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu né hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum. Per­sónu­vernd fór þá fram á að Sigríður Björk afhenti tölvu­póst­inn, sem hún varð síðar við.

Sigríður Björk, sem nú gegnir stöðu lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hefur stað­fast­lega neitað að hafa við­hafst nokkuð sem stang­ast á við góða starfs­hætti, en eins og Kjarninn benti á í ítar­legri frétta­skýr­ingu í lok nóv­em­ber eru uppi ýmis álita­mál um hvort Sigríði hafi verið heim­ilt að afhenda Gísla Frey umbeðna grein­ar­gerð, meðal ann­ars vegna þess að hann hafi ekki verið til þess bær að óska eftir slíkum upp­lýs­ingum. Þá vakti óneit­an­lega athygli þegar Sigríður sagði í við­tali við RÚV að hún hefði aldrei látið lög­reglu vita af sam­skiptum hennar og Gísla á meðan rann­sókn leka­máls­ins stóð.

Eftir stjórn­ar­fund hjá Per­sónu­vernd á morgun verður nið­ur­staða stofn­un­ar­innar send þeim Sigríði Björk og Gísla Frey. Nið­ur­staða Per­sónu­verndar er end­an­leg, en búast má við að hún verði birt á vef­síðu stofn­un­ar­innar síð­degis á mánu­dag­inn, til að tryggja að nið­ur­staðan ber­ist máls­að­ilum áður en hún verður birt opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár