Sigríður Björk þurfti ekki að láta ráðuneytið fá persónuupplýsingar

Samkvæmt úrskurði Per­sónu­verndar í Falun Gong mál­inu svo­kall­aða frá árinu 2003, er lög­reglu ekki skylt að afhenda ráðu­neytum per­sónu­upp­lýs­ingar. Í úrskurð­inum kemur fram að ráð­herra sé ekki hand­hafi lög­reglu­valds og því hafi hann ekki sömu heim­ild og lög­regla til vinnslu og miðl­unar per­sónu­upp­lýs­inga. Þá gildi einu þó ráð­herra sé æðsti yfir­maður lög­reglu. Úrskurð­ur­inn stang­ast á við ummæli Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum og núver­andi lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, í tengslum við leka­málið svo­kall­aða.

„Ef ráðuneytið biður um eitthvað, þá fær ráðuneytið það sem það biður um“


Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, grein­ar­gerð um mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos í árdaga leka­máls­ins svo­kall­aða, sam­kvæmt óform­legu sím­tali þeirra á milli.

Í sam­tali við frétta­stofu RÚV á laug­ar­dag­inn sagði Sigríður Björk að umbeðin grein­ar­gerð hafi verið send Gísla Frey, þar sem hann hafi verið full­trúi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og full­trúi ráð­herra. „Ef ráðu­neytið biður um eitt­hvað þá fær ráðu­neytið það sem það biður um,“ sagði Sigríður Björk í sam­tali við RÚV.

Hún kvaðst hafa sent upp­lýs­ing­arnar á grund­velli 14. greinar laga um Stjórn­ar­ráð Íslands, en þar segir: „Ráðherra getur krafið stjórn­vald, sem heyrir undir yfir­stjórn hans, um hverjar þær upp­lýs­ingar og skýr­ingar sem honum er þörf á til að sinna yfir­stjórn­ar­hlut­verki sínu.“ Þá sagði Sigríður Björk enn­fremur í áður­nefndri frétt RÚV: „Við höfum oft sent grein­ar­gerðir um ýmis mál inn í ráðu­neytið, allir í kerf­inu gera það.“

Ráðherra er ekki handhafi lögregluvalds


Eins og Kjarninn hefur áður rakið var umbeðin grein­ar­gerð send Gísla Frey í trássi við reglu­gerð um með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga hjá lög­reglu. Þar segir að per­sónu­upp­lýs­ingum verði aðeins miðlað til ann­ara stjórn­valda eða til einka­að­ila; sam­kvæmt sam­þykki hins skráða, sam­kvæmt laga­heim­ild, sam­kvæmt heim­ild Per­sónu­verndar eða ef miðlun upp­lýs­inga er nauð­syn­leg til að koma í veg fyrir alvar­lega og aðsteðj­andi hættu.

Í úrskurði Per­sónu­verndar í Falun Gong mál­inu svo­kall­aða, frá árinu 2003, var þáver­andi dóms­mála­ráðu­neyti óheim­ilt að miðla upp­lýs­ingum um með­lim Falun Gong til Flug­leiða og nokk­urra sendi­ráða Íslands,þar sem ekki var gætt að því að upp­fyllt væru skil­yrði reglu­gerðar um miðlun per­sónu­upp­lýs­inga frá lög­reglu og ráðu­neytið var ekki réttur aðili til meta hvort aðstæður heim­il­uðu slíka miðlun. Um var að ræða lista af hálfu Rík­is­lög­reglu­stjóra, yfir ein­stak­linga sem talið var að væru á leið til Íslands í því skyni að efna til mót­mæla og trufla þannig heim­sókn Kína­for­seta hingað til lands.

[caption id="attachment_13053" align="aligncenter" width="640"] Frá mót­mælum Falun Gong vegna opin­berrar heim­sóknar Kína­for­seta til Íslands árið 2002.[/caption]

Í nið­ur­stöðukafla úrskurð­ar­ins segir: „Varðandi tengsl dóms­mála­ráð­herra og lög­reglu skal tekið fram að í 4. gr. lög­reglu­laga nr. 90/1996 segir að dóms­mála­ráð­herra sé æðsti yfir­maður lög­regl­unnar í land­inu og að rík­is­lög­reglu­stjóri fari með mál­efni lög­reglu í umboði hans. Í 9. gr. lag­anna er hins vegar talið upp hverjir séu hand­hafar lög­reglu­valds og er dóms­mála­ráð­herra ekki þeirra á meðal. Að mati Per­sónu­verndar verður ákvæði 4. gr. ekki túlkað þannig að dóms­mála­ráð­herra hafi sömu heim­ild og lög­regla hefur til vinnslu og miðl­unar per­sónu­upp­lýs­inga.“

„Vinnsla“ per­sónu­upp­lýs­inga er skil­greind í lögum um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga. „Sérhver aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með per­sónu­upp­lýs­ingar, hvort heldur sem vinnslan er hand­virk eða raf­ræn.“ Að taka við per­sónu­upp­lýs­ingum, vista þær, skrá þær, lesa þær eða opna tölvu­póst sem þær ber­ast í fellur þannig allt undir „vinnslu“ per­sónu­upp­lýs­inga, sam­kvæmt athugun Kjarnans.

Lög um Stjórnarráð Íslands eiga ekki við varðandi miðlun persónuupplýsinga


Úrskurður Per­sónu­verndar í Falun Gong mál­inu er því athygl­is­verður fyrir margar sakir. Þó Rík­is­lög­reglu­stjóra hafi ekki verið óheim­ilt að afla per­sónu­upp­lýs­inga um með­limi Falun Gong, getur ráð­herra ekki farið fram á að fá afhentar slíkar upp­lýs­ingar nema að skil­yrðum áður­nefndar reglu­gerðar um með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga hjá lög­reglu sé upp­fyllt. Í því sam­bandi er ekki hægt að líta til stöðu ráð­herra sem yfir­stjórn­anda lög­reglu eins og úrskurður Per­sónu­verndar frá árinu 2003 stað­festir.

Miðað við ummæli Sigríðar Bjarkar er vand­séð að hún hafi gætt þess að Gísli Freyr væri til þess bær aðili til að taka við per­sónu­upp­lýs­ingum sem aflað var í þágu lög­reglu­starfa, sem henni bar að gera áður en hún miðl­aði til hans gögnum. Skýr­ingar hennar eru í raun á skjön við allar grund­vall­ar­reglur á sviði ábyrgrar stjórn­sýslu og réttrar með­ferðar á per­sónu­upp­lýs­ingum.

Þá vekur sömu­leiðis athygli að Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir var skipuð aðstoð­ar­rík­is­lög­reglu­stjóri árið 2007, og hefði því ef til vill átt að vera upp­lýst um lyktir Falun Gong máls­ins hjá Per­sónu­vernd og hvaða lær­dóm hafi mátt draga af mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár