Tölvupóstur sem Sigríður Björk sendi Gísla Frey um Omos finnst ekki

Tölvu­póstur sem Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, kveðst hafa sent Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, þann 20. nóv­em­ber árið 2013 með grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos, finnst hvorki í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu né hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum.

Þetta kemur fram í svörum ráðu­neyt­is­ins og lög­reglu­stjóra­emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Per­sónu­verndar, sem óskaði eftir að fá umræddan tölu­vpóst afhentan.

Upplýsingar í minnisblaði gátu ekki komið úr greinargerð


Per­sónu­vernd hóf rann­sókn á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar og Gísla Freys í kjöl­far yfir­lýs­ingar sem Sigríður sendi frá sér í vegna fréttar DV frá 18. nóv­em­ber, um að hún og Gísli Freyr hefðu ræðst við í síma dag­inn sem fréttir um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos birt­ust í fjöl­miðlum. Í yfir­lýs­ing­unni við­ur­kenndi Sigríður að hún hefði sent Gísla Frey umbeðna grein­ar­gerð um mál­efni Omos.

Umrædd grein­ar­gerð var afhent Per­sónu­vernd eftir dúk og disk, en tölvu­póst­ur­inn sem Sigríður Björk kveðst hafa sent Gísla Frey með grein­ar­gerð­inni er lyk­il­gagn í rann­sókn Per­sónu­verndar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Sigríður Björk hefur ítrekað haldið fram að grein­ar­gerðin hafi verið send Gísla þann 20. nóv­em­ber, eða kvöldið eftir að fyrstu frétt­irnar um Tony Omos birt­ust, og því hafi ein­hverjar upp­lýs­ingar í frægu minn­is­blaði sem Gísli Freyr sendi fjöl­miðlum um hæl­is­leit­and­ann ekki getað komið úr henni.

Persónuvernd bíður enn eftir að fá tölvupóstinn


Eftir að Per­sónu­vernd fékk upp­lýs­ingar um að umræddur tölvu­póstur hafi hvorki fund­ist hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu né lög­reglu­stjóra­emb­ætt­inu á Suð­ur­nesjum, sendi stofn­unin Gísla Frey og Sigríði Björk bréf þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn, þar sem þeim var veittur frestur til að afhenda tölvu­póst­inn. Frestur Sigríðar Bjarkar rann út í dag, en Per­sónu­vernd féllst nýverið á beiðni hennar um lengri frest. Frestur Gísla Freys til að afhenda Per­sónu­vernd umræddan tölvu­póst rennur út á morgun. Per­sónu­vernd hefur engin við­brögð fengið frá honum.

Eins og áður segir er tölvu­póst­ur­inn lyk­il­gagn í rann­sókn Per­sónu­verndar á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar og Gísla Freys vegna leka­máls­ins. Bæði til að fá stað­fest að tölvu­póst­ur­inn hafi verið sendur dag­inn eftir að fyrstu frétt­irnar birt­ust um Tony Omos, og til að kanna hvort tölvu­póst­ur­inn hafi inni­haldið frek­ari upp­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár