Bjarni gaf villandi mynd af uppboðinu í Færeyjum

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurði hvort bjóða ætti útlend­ingum kvót­ann og hvatti Íslend­inga til að fagna vel­gengni útgerð­ar­fyr­ir­tækja: „Eru það ekki góð tíð­indi ann­ars? Er það ekki frá­bært?“ sagði hann í For­ystu­sæt­inu á RÚV.

Bjarni gaf villandi mynd af uppboðinu í Færeyjum

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spyr hvort hug­myndir um upp­boð afla­heim­ilda snú­ist um að selja útlend­ingum fisk­veiði­heim­ildir Íslend­inga.

Bjarni sat fyrir svörum í For­ystu­sæt­inu á RÚV í kvöld. Þegar rætt var um upp­boðs­leið Fær­ey­inga tal­aði Bjarni eins og ein­ungis eitt fyr­ir­tæki, í eigu útlend­inga, hefði keypt veiði­heim­ildir á upp­boð­unum. Sú er ekki raunin.

Þegar spyrill minnt­ist á upp­boð veiði­heim­ilda í Færeyjum sagði Bjarni: „Þú ert að tala um heim­ild­irnar sem voru seldar útlend­ing­unum, sem fóru til eins fyr­ir­tækis. Eru menn í alvör­unni að tala um það að við eigum núna að taka þessa fisk­veiði­auð­lind sem skapar störf út um allt land og bjóða hana til útlend­inga?“ 

Í sumar buðu Fær­ey­ingar upp hluta af afla­heim­ildum sínum í til­rauna­skyni. Hér á landi vakti tals­verða athygli að kíló­verðið sem fékkst fyrir afla­heim­ild­irnar reynd­ist a.m.k. tíu sinnum hærra en tekj­urnar sem íslenska ríkið aflar sér í formi veiði­gjalda frá íslenskum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum fyrir hvert kíló af sömu fiski­teg­undum. 

Fisk­veiði­heim­ild­irnar í Færeyjum voru ekki seldar einu fyr­ir­tæki heldur mörgum. Þá gátu aðeins fær­eysk fyr­ir­tæki, félög í meiri­hluta­eigu Fær­ey­inga, tekið þátt í upp­boð­inu.

Eins og Hermann Oskars­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi hag­stofu­stjóri Færeyja, benti nýlega á í við­tali við Stundina eru í gildi lög í Færeyjum um að erlendir aðilar megi í mesta lagi eiga 33 pró­senta hlut í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. Aðeins fyr­ir­tæki skráð í Færeyjum gátu tekið þátt í upp­boð­inu. „Vissu­lega eiga erlendir aðilar hlut í sumum þeirra, en aldrei meira en þriðj­ung. Þess vegna er ekki rétt að erlendir aðilar séu að sanka að sér fisk­veiði­kvót­anum,“ sagði Hermann þegar Stundin ræddi við hann í sumar.

Á Íslandi eru einnig í gildi lög sem setja aðkomu útlend­inga að fisk­veiðum og vinnslu sjáv­ar­af­urða mjög þröngar skorður. Annar af spyrlum RÚV, Jóhann Hlíðar Harð­ars­son, benti Bjarna á þetta í kvöld. „Við erum með girð­ingu fyrir því, útlend­ingar eiga ekki hér í sjáv­ar­út­vegi svo það á ekki við,“ sagði hann og vís­aði þar vænt­an­lega til 4. gr. laga um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri sem tak­markar veru­lega mögu­leika útlend­inga á aðkomu að íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Þannig er óljóst hvernig fisk­veiði­kvót­inn á Íslandi ætti að lenda í höndum erlendra fyr­ir­tækja. 

Bjarni sagði að ef upp­boðs­leiðin yrði illa útfærð gæti hún valdið veru­legri röskun byggð­anna. 

Þegar hann var spurður um lækkun veiði­gjalda í við­tal­inu sagði hann að rík­is­stjórnin hefði hækkað veiði­gjaldið á upp­sjáv­ar­veiðar en lækkað á bol­fisk og full­yrti að veiði­gjaldið sem sett hefði verið á bol­fisk­inn hefði verið ófram­kvæm­an­legt. Þá hvatti hann til þess að Íslend­ingar fögn­uðu vel­gengni sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja.

„Íslend­ingar, við verðum að fara að gleðj­ast yfir því að þess­ari grund­vall­arat­vinnu­grein okkar gangi vel. Eru það ekki góð tíð­indi ann­ars? Er það ekki frá­bært? Þegar ég var í æsku þá voru þetta bæj­ar­út­gerðir sem voru í ströggli, það gekk illa“ sagði Bjarni og benti á að nú væri staða útgerð­anna allt önnur, ekki síst vegna þeirra kerf­is­breyt­inga sem lagt hefðu grunn­inn að stór­kost­legri verð­mæta­sköpun í sjáv­ar­út­vegi. 

Myndin hér að neðan sýnir hvernig veiði­gjöld lækk­uðu eftir að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs og Bjarna Bene­dikts­sonar tók við vorið 2013. Um leið hélt afkoma sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja áfram að batna og arð­greiðslur til eig­enda þeirra juk­ust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár