Viðsnúningur í viðhorfum Vigdísar Hauksdóttur eftir valdatökuna

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks lögðu fram þings­á­lykt­unn­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðlsu um við­ræðu­ferli Íslands og ESB árið 2010.

Viðsnúningur í viðhorfum Vigdísar Hauksdóttur eftir valdatökuna

Vigdís Hauks­dóttir, ásamt Ásmundi Einari Daðasyni, Pétri H. Blöndal og Árna Johnsen, lögðu fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu árið 2010 um að þjóð­ar­at­kvæð­is­greiðsla færi fram um aðlög­unar- og við­ræðu­ferli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins. Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan strand­aði í þing­inu líkt og mátti búast við þar sem Vigdís og félagar voru í stjórn­ar­and­stöðu. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni koma þó eft­ir­far­andi orð fram sem lýsa vel við­horfs­breyt­ingu þing­manna við að fara úr stjórn­ar­and­stöðu í rík­is­stjórn­ar­sam­starf: „Alþingi eitt hefur vald til að draga umsókn­ina til baka, en minnt er á að sami þing­meiri­hluti situr nú og við sam­þykkt umsókn­ar­innar.“

„Þetta mál snýst um rétt þjóð­ar­innar til að segja skoðun sína á því hvort eigi að halda áfram með aðlög­un­ar­ferlið eða ekki“

„Þetta mál snýst um rétt þjóð­ar­innar til að segja skoðun sína á því hvort eigi að halda áfram með aðlög­un­ar­ferlið eða ekki,“ sagði Vigdís svo í umræðu um til­lög­una.

Eins og fram hefur komið í fréttum ákvað rík­is­stjórnin á dög­unum að slíta aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið með bréfa­send­ingu án þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og án þess að taka málið upp á Alþingi. 

Hafa umhverfst í afstöðu sinni

Niðurlag álykt­un­ar­innar hljóðar svo líkt og það komi úr munni núver­andi stjórn­ar­and­stöðu. „Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla er við­ur­kennd aðferð til að leiða fram þjóð­ar­vilja í mik­il­vægum mál­efnum. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort halda eigi áfram við­ræðu­ferli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins er brýnt hags­muna­mál allrar þjóð­ar­innar. Allir stjórn­mála­flokkar tala fyrir auknu lýð­ræði og beinni aðkomu þjóð­ar­innar að ákvarð­ana­töku, sér í lagi þegar um stór deilu­mál er um að ræða. Nú reynir á að sýna þann vilja í verki,“ segir í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni.

Breytt afstaða til lýðræðis

Þetta er ekki eina dæmið um að Vigdís segi eitt í stjórn­ar­and­stöðu en annað í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Í við­tali við Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni árið 2012 sagði hún til að mynda að skoða­kann­anir bentu til þess að meiri­hluti lands­manna vildi ekki að Ísland gengi í Evr­ópu­sam­bandið.  „Skoð­ana­kann­anir sem við erum búin að vera að horfa á núna í eitt og hálft ár sýna það að lands­menn stíga ekki sama dans og rík­is­stjórnin þannig að núna verður meiri­hlut­inn að fara að ráða hér í þessu landi,“ sagði Vigdís þá. Skoð­ana­könnun sem Frétta­blaðið lét gera í lok síð­asta mán­aðar benti til að um 80 pró­sent lands­manna vilja þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­legur ávinn­ingur „blasir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, fer yfir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætlað er að nettófram­lag Íslands gæti verið á bil­inu sex til 15 millj­arðar á ári, en pró­fess­or­inn telur efna­hags­legan ávinn­ing meiri en útgjöldin.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár