Vigdís Haukdsóttir líkir mótmælum vegna Panamaskjalanna við valdaránið í Tyrklandi

„Hér var fram­kvæmt hálf­gert valda­rán og það heppn­að­ist en í Tyrk­landi var valda­rán sem mis­heppn­að­ist,“ sagði Vigdís Hauks­dóttir í við­tali við Útvarp Sögu.

Vigdís Hauksdóttir.
Vigdís Hauks­dóttir. Formaður fjár­laga­nefndar. Mynd: Af vef Framsóknarflokksins

Í við­tali við Útvarp Sögu fyrr í vik­unni líkti Vigdís Hauks­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, mót­mælum sem haldin voru á Íslandi, eftir að í ljós kom að nöfn þriggja ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar koma fram í Panama­skjöl­unum, við hina mis­heppn­uðu valda­ránstil­raun í Tyrk­landi.​

Vigdís var við­mæl­andi Arn­þrúðar Karls­dóttur, en ljóst er að atburða­rásin sem fór af stað í kjöl­far birt­ingar Panama­skjal­anna var henni ekki að skapi. 

Í Kast­ljós­þætti í byrjun apríl var fjallað um aflands­fé­lagið Wintris sem skráð var á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, og eig­in­konu hans. Einnig var fjallað um aflands­fé­lagið Falson & Co í eigu Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og mál Ólafar Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra, sem var skráð pró­kúru­hafi skúffu­fyr­ir­tækis á Tortóla tveimur dögum eftir að hún tók þátt í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2006.

„Hér var fram­kvæmt hálf­gert valda­rán og það heppn­að­ist en í Tyrk­landi var valda­rán sem mis­heppn­að­ist.“

Eftir Kast­ljós­þátt­inn voru haldin gríð­ar­lega fjöl­menn mót­mæli á Aust­ur­velli þar sem áætlað var að allt að 20.000 manns hafi verið við­staddir. Um þetta sagði Vigdís í við­tal­inu við Útvarp Sögu:

„Er það lýð­ræð­is­legt að það sé hægt að koma niður á Austu­völl og hrekja rétt­kjörin stjórn­völd frá völdum? Það var nú mis­heppnað valda­rán í Tyrk­landi, nýyf­ir­staðið og teljum við okkur nú vera meira lýð­ræð­is­ríki heldur en nokkurn tíma Tyrkland, hér var fram­kvæmt hálf­gert valda­rán og það heppn­að­ist en í Tyrk­landi var valda­rán sem mis­heppn­að­ist. Er það bara nóg að það sé hægt að mæta bara á Aust­ur­völl og hrekja rétt­kjörin stjórn­völd frá völdum, sem hafa svo stóran meiri­hluta?“

Tveimur dögum eftir hin fjöl­mennu mót­mæli sagði Sig­mundur Davíð for­sæt­is­ráð­herra af sér, og Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við emb­ætti. Jafn­framt var því lýst yfir að alþing­is­kosn­ingum yrði flýtt fram á haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár