„Umskurður er sálrænt og líkamlegt áfall“

Íslenski lýta­lækn­ir­inn Hannes Sig­ur­jóns­son fram­kvæmdi fyrstu skurða­að­gerð­ina í Svíþjóð þar sem kyn­færi konu voru end­ur­upp­bygð eftir umskurð. Vanda­málið er stórt í Svíþjóð þar sem þús­undir kvenna eru umskornar og margar ungar stúlkur eiga á hættu að lenda í umskurði. Í sumar mun Hannes bjóða upp á aðgerð­ina á Íslandi.

„Umskurður er sálrænt og líkamlegt áfall“
Gerir aðgerð­ina á Íslandi Hannes var fyrsti lækn­ir­inn til að fram­kvæma skurð­að­gerð á kyn­færum umskor­innar konu í Svíþjóð. Hann mun bjóða upp á þessa aðgerð á Íslandi í sumar en engar upp­lýs­ingar eru til um fjölda umskor­inna kvenna á land­inu.

„Nokkrar af kon­unum hafa fengið full­næg­ingu,“ segir Hannes Sigur­jóns­son, íslenskur lýta­læknir búsettur í Stokk­hólmi í Svíþjóð, sem varð síð­ast­liðið haust fyrsti lækn­ir­inn til að fram­kvæma skurð­að­gerð á kyn­færum umskor­innar konu þar í landi. Það sem af er ári hafa Hannes og félagar hans við lýta­lækn­inga­deild Karol­inska-háskóla­sjúkra­húss­ins gert sex slíkar aðgerðir og seg­ist hann vita til þess að nokkrar af þeim hafi í kjöl­far aðgerð­ar­innar upp­lifað full­næg­ingu í fyrsta skipti á ævinni.
Talið er að um þrjár millj­ónir stúlkna, flestar á aldr­inum 4 til 11 ára, séu umskornar á hverju ári en um er að ræða aldagamla sið­venju í löndum eins og Sómalíu, Eþíópíu, Síerra Leóne, Súdan, Egypta­landi og Kenía meðal ann­arra. Vegna tölu­verðs inn­flutn­ings fólks frá Afríku til Sví­þjóðar á liðnum árum, til að mynda frá Sómalíu, er talið að nú séu um það bil 40 þús­und umskornar konur búsettar í land­inu.

Umskurð­ur­inn á sér því stað á stúlkum á barns­aldri og hafa þær konur, sem lenda í slíku ofbeldi, og ákveða að fara í aðgerð­ina til að láta end­ur­upp­byggja kyn­færi sín, lifað með afleið­ingum umskurð­ar­ins í mörg ár eða jafn­vel ára­tugi. 

Kynbundið ofbeldi

Til­gangur umskurð­ar­ins er að koma í veg fyrir að stúlk­urnar geti síðar meir upp­lifað ánægju af kyn­lífi. Sið­venjan er meira en tvö þús­und ára gömul en er ekki bundin við ein­hver ein trú­ar­brögð. Umskurður tíðkast hins vegar hvað helst í sam­fé­lögum þar sem feðra­veldi er ríkj­andi og þar sem kynja­jafn­rétti er skammt á veg komið. Sið­venjan er því ein af þeim aðferðum sem not­aðar eru í við­kom­andi sam­fé­lögum til að kúga konur og beygja þær undir karl­menn. Umskurður hefur engan líf­fræði­legan eða praktískan til­gang annan en að beita kon­una því kyn­bundna ofbeldi sem í honum felst og af aðgerð­inni leiðir.

Afleið­ing­arnar af umskurð­inum eru hins vegar miklu víð­tæk­ari en kyn­ferð­is­legar, líkt og gildir um annað lík­am­legt ofbeldi. Sálrænar afleið­ingar þar sem konan upp­lifir sig sem skadd­aða, sárs­auki og verkir á kyn­færa­svæð­inu, erf­ið­leikar við þvag­lát og blæð­ingar geta verið hluti af fylgi­kvillum umskurð­ar­ins.

Mismunandi gerðir umskurðar

Árang­ur­inn af aðgerð­inni er því miklu fjöl­breyti­legri en svo að hann sé aðeins kyn­ferð­is­legur segir Hannes. „Árang­ur­inn af aðgerð­inni hingað til hefur verið sá að kon­unum líður betur; þeim finnst þær hafa end­ur­heimt eitt­hvað sem var tekið frá þeim: Þær upp­lifa sig sem heilar.“ Nokkrar mis­mun­andi teg­undir umskurðar tíðkast í þeim löndum þar sem þessi grimmi­lega sið­venja er sem algeng­ust. 

Í umskurði kvenna getur falist að fremsti hluti sníps­ins er skor­inn af og eða skapa­barm­arnir og í sumum til­fellum er jafn­vel saumað fyrir leg­ganga­opið. Þar sem sníp­ur­inn er um 7 til 10 sentí­metra langur er ein­ungis fremsti hluti hans skor­inn af við umskurð en afgangur hans er ennþá til staðar án þess að vera sýni­legur. Með end­ur­upp­bygg­ing­unni er byrjað á að gera opn­un­ar­að­gerð ef konan hefur verið saumuð saman við umskurð­inn. Því næst er örvefur sem eftir umskurð­inn lóðar snip­inn við líf­beinið tek­inn burt. Þar með er hægt að færa líf­væn­legan hluta sníps­ins á sinn upp­runa­lega stað. Í kjöl­farið verður fremsti hluti sníps­ins aftur sýni­legur og þá snertan- og ert­an­legur. Ef nægur vefur er til staðar á kyn­færa­svæð­inu er einnig hægt að end­ur­upp­byggja innri skapa­barma og sníps­for­húð­ina. Eðli aðgerð­ar­innar er því mis­mun­andi eftir því hvernig umskurð­ur­inn átti sér stað. 

Hannes lýsir jákvæðum afleið­ingum aðgerð­ar­innar fyrir þær konur, sem aðgerðin hefur verið fram­kvæmd á, með eft­ir­far­andi hætti:  „Þær konur sem höfðu króníska verki frá örvef og tauga­vef á kyn­færa­svæð­inu hafa losnað við hann, að ein­hverju eða öllu leyti. Þær konur sem voru saum­aðar saman og áttu erfitt með þvag­lát og lentu í erf­ið­leikum þegar þær höfðu tíðir hafa losnað við þau vanda­mál. Flestar hafa upp­lifað betri kyn­ferð­is­lega til­finn­ingu í snípnum og í kringum sníp­inn og nokkrar af kon­unum sem aldrei höfðu upp­lifað full­næg­ingu höfðu gert það nokkrum mán­uðum eftir aðgerð­ina.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár