Þjóðfylkingin fundaði um breytingar á samfélaginu

Íslenska þjóð­fylk­ingin hélt í síð­ustu viku lands­fund sinn á Café Catalina í Kópavogi. Var frétta­flutn­ingur af fund­inum fremur lít­ill, en þó var þar einn blaða­maður, Þórarinn Þór­ar­ins­son, í dul­ar­gervi.

Þjóðfylkingin fundaði um breytingar á samfélaginu
Upp­gangur fas­isma. Hægri öfga­flokkar hafa verið að sækja í sig veðrið í Evrópu síð­ustu miss­eri.

Íslenska þjóð­fylk­ingin hélt í síð­ustu viku lands­fund sinn á Café Catalina í Kópavogi. Var frétta­flutn­ingur af fund­inum fremur lít­ill, en þó var þar einn blaða­maður, Þórarinn Þór­ar­ins­son. Segist Þórarinn, sem fór á fund­inn í dul­ar­gervi, með Donald Trump-húfu og í Útvarp Sögu-bol, telja að þarna sé um íslenskan fas­ista­flokk að ræða. Á fund­inum hafi þau reynt að skil­greina sig sem stjórn­mála­afl og að aug­ljóst hafi verið að fund­ar­gestir hafi verið hræddir við fas­ista- og ras­ista­stimp­il­inn sem vofir yfir þeim. „Þau ótt­ast að vera skil­greind sem hægri öfga­flokkur, sem er ekk­ert út í blá­inn, en það eru ein­hverjar mein­ingar um að reyna að fjar­lægja sig frá því.“

Sagði hann einnig að fund­ar­gestir hefðu mikið talað um að á Íslandi ríkti ekki lýð­ræði heldur „RÚV-ræði,“ sem væri ástand sem flokk­ur­inn hygð­ist berj­ast gegn. Að moka þyrfti öllu hús­töku­fólk­inu í Efsta­leit­inu út, sem hand­velur ESB-sinna og vinstri­menn í öll við­töl. Sökuðu fund­ar­gestir vinstri­menn um að mis­nota frétta­stofu RÚV í frétta­skýr­ingum og kröfð­ust þeir þess að stjórn­völd sæju til þess að hlut­leysi frétta­stofu yrði fram­fylgt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár