Formaður Sjálfstæðisflokksins lagðist harðast gegn markaðsleiðinni

Bjarni Bene­dikts­son er á móti því að ríkið bjóði upp fisk­veiði­kvóta og láti útgerð­ar­menn borga mark­aðs­verð þótt flokkur hans leggi almennt áherslu á frjálsa mark­aði.

Formaður Sjálfstæðisflokksins lagðist harðast gegn markaðsleiðinni

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ótt­ast að fyr­ir­sjá­an­leiki í sjáv­ar­út­vegi verði fyrir borð bor­inn ef afla­heim­ildir eru boðnar upp á frjálsum mark­aði. Þetta kom fram í sér­stakri umræðu um upp­boðs­leið­ina sem fram fór á Alþingi í gær að frum­kvæði Oddnýjar Harð­ar­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. 

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins var sá þing­maður sem tal­aði harð­ast gegn því að farin yrði mark­aðs­leið við úthlutun afla­heim­ilda. 

„En er það ekki einmitt svo að ef allt fer á upp­boð þá er eng­inn fyr­ir­sjá­an­leiki, þá er engin vissa? Þá fyrst verður hátt­virtur þing­maður að fara til Þor­láks­hafnar og segja: Ja, það er nú bara þannig, kæru íbúar hér, að það var mark­að­ur­inn sem réði? Hver er þá fyr­ir­sjá­an­leik­inn fyrir íbúa hinna dreifðu byggða? Hann er eng­inn,“ sagði Bjarni í fyrri ræðu sinni. 

Í ræðu sem hann hélt undir lokin sagði hann meðal ann­ars: „Við höfum hingað til byggt upp kerfi sem byggir á veiði­gjöldum. Það er ekki galla­laus leið en hér koma menn og segja: Mark­aðs­leiðin er miklu, miklu betri og full­komn­ari. Þegar ég kem upp og segi að það sé ekki galla­laus leið koma menn nán­ast og segja: Víst er það galla­laus leið, alla hnökra á þeirri leið er hægt að leysa.“ 

Þá benti hann á að frá því að frjálst fram­sal afla­heim­ilda var heim­ilað upp úr 1990 hefðu afla­heim­ildir gengið kaupum og sölum. Þessu lýsti hann sem frjálsum og opnum mark­aði. Hins vegar telur hann að upp­boð afla­heim­ilda myndi „að sjálf­sögðu kasta alger­lega fyrir róða mögu­leikum stjórn­valda á að tryggja þó þann stöð­ug­leika í byggða­þróun sem hingað til hefur tek­ist“. 

Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, gagn­rýndi mál­flutn­ing Bjarna Bene­dikts­sonar harð­lega. „Það er svo­lítið merki­legt að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hæst­virtur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skuli ekki hafa meiri trú á mjög þekktu gömlu fyr­ir­komu­lagi til að ákveða verð, sem er frjáls mark­aður. Treystir hann ekki útgerð­ar­mönnum til þess að fara inn á frjálsan markað og standa að verð­myndun þar á mark­aðs­torgi? Er hæstv. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra virki­lega þeirrar skoð­unar að það sé betra að rík­is­valdið ákveði þetta verð? Er hann orð­inn því­líkur tals­maður rík­is­af­skipta? Mér finnst þetta mjög merki­legt,“ sagði hann. 

Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata, tók í sama streng: „Nú liggur fyrir að Fær­ey­ingar hafa gert til­raun með upp­boð afhaheim­ilda og er skemmst frá því að segja að þeir upp­skáru auð­lind­arentu til rík­is­sjóðs Fær­ey­inga sem var um 2.400 pró­sentum hærra en Íslend­ingar bera úr býtum í auð­linda­gjöld. Það er bein­línis hlægi­legt að þeir flokkar sem vilja telja sig frjáls­lynda og mark­aðs­sinn­aða skuli tala gegn því að auð­linda­gjöld séu ákveðin á frjálsum mark­aði. Það er deg­inum ljós­ara að þeir flokkar sem tala fyrir geð­þótta­á­kvörð­unum um skipt­ingu auð­lind­arent­unnar milli útgerðar og þjóðar hafa engan áhuga á því að afla rík­is­sjóði tekna til þess að hreinsa út sveppa­gróður á spít­ala lands­manna. Þeir flokkar kjósa heldur að afhenda flokks­gæð­ingum afrakstur sam­eig­in­legra verð­mæta þjóðar sinnar svo að örfáar fjöl­skyldur geti notið aðhlynn­ingar á hátækni­einka­sjúkra­húsum erlendis án myglu­sveppa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fiskveiðar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár