Tólf ára drengur lést af óútskýrðum orsökum

Aron Andri Hall Arn­ars­son lést í svefni eftir að hann kom heim í Graf­ar­holtið úr Flór­ídaferð. Dán­ar­or­sökin er rann­sökuð af þýskum sér­fræð­ingi.

Tólf ára drengur lést af óútskýrðum orsökum
Aron Andri Hall Arn­ars­son Arons er sárt saknað, en hann fékk meðal ann­ars verð­laun í Ing­unn­arskóla fyrir að koma vel fram við sam­nem­endur sína.

Daginn eftir að hinn tólf ára gamli Aron Andri Hall Arn­ars­son kom heim úr mán­að­ar­ferða­lagi til Flórída með fjöl­skyld­unni fyrir tveimur vikum lést hann í svefni á óút­skýrðan hátt.

Andlát hans var fjöl­skyld­unni gríð­ar­legt áfall og hafa aðstand­endur for­eldra hans, Sig­ur­rósar Gísla­dóttur og Arnars Más Hall Guð­munds­sonar, blásið til söfn­unar til að styrkja þau vegna kostn­að­ar­ins sem fylgir útför, töp­uðum vinnu­stundum og fleiri ver­ald­legum rösk­unum sem hljót­ast af ást­vina­missi. 

Aron skilur eftir sig fjölda ást­vina, þar á meðal tvær systur, þriggja og 18 ára.

Engan grun­aði að Aron væri með und­ir­liggj­andi alvar­legt mein. Hann fékk þó floga­kast fyrir um ári síðan, en ekki hefur verið sýnt fram á að það teng­ist skyndi­legu and­láti hans.

„Dán­ar­or­sökin verður trú­lega titluð sem óút­skýrð,“ segir Pétur Þór Hall Guð­munds­son, föð­ur­bróðir Arons, í sam­tali við Stundina. „Þetta var að öllum lík­indum ekki vegna floga­kasts. Þýskur sér­fræð­ingur fram­kvæmdi krufn­ing­una og tók sýni til rækt­unar í Þýska­landi. Við fáum vænt­an­lega nið­ur­stöður í sept­em­ber. Ef það er þá hægt að finna eitt­hvað. Þetta er bara óút­skýrt, hann varð bráð­kvaddur, líkt og vöggu­dauði, eða þannig. Þetta er ekki algengt, var okkur sagt.“

Aron Andri með systur sinni
Aron Andri með systur sinni Hann skilur eftir sig þriggja ára og 18 ára systur.

Framúrskarandi nemandi og skólafélagi

Aron Andri var nem­andi í Ing­unn­arskóla í Graf­ar­holti og hlaut meðal ann­ars hvatn­ing­ar­verð­laun skól­ans 2012-2013 fyrir sam­visku­semi, kurt­eisi, jákvæðni og fyrir að hafa verið fram­úr­skar­andi nem­andi, hug­mynda­ríkur og list­rænn. Áður hafði hann verið í leik­skól­anum Mar­íu­borg frá 2006 til 2009. Hann bjó í Graf­ar­holt­inu alla sína tíð.

Aron hafði mik­inn áhuga á hvers kyns hönnun og sköpun. Pétur Þór, föð­ur­bróðir hans, segir að hann hafi haft ákveðna eig­in­leika verk­fræð­ings. „Hann tók eftir öllu sem var öðru­vísi en annað. Það sem fang­aði augað hans.“ Þegar Aron kom í heim­sókn til Péturs horfði hann gjarnan á fræðslu­þátt­inn How It’s Made, sem fjallar um hvernig þekktir mann­gerðir hlutir í umhverfi okkar eru hann­aðir og fram­leiddir. Hann fann áhug­anum meðal ann­ars far­veg í tölvu­leiknum Minecraft, sem snýst um að safna hrá­efni og byggja úr því, og legókubbum, en hann átti mikið safn þeirra.

Haldin var minn­ing­ar­stund í Guð­ríð­ar­kirkju í Graf­ar­holti síð­ast­lið­inn mið­viku­dag þar sem skóla­fé­lagar, starfs­menn skól­ans, vinir og fleiri úr hverf­inu minnt­ust Arons Andra. 

Nýkominn úr draumaferð til Flórída

Fjöl­skyldan hafði safnað fyrir Flór­ídaferð sem varð loks­ins að veru­leika í sumar. Þau dvöldu þar í mánuð og fóru í skemmti­garða og fleira. Aron undi sér vel. Á heim­leið­inni sagði hann for­eldrum sínum að hann væri þakk­látur. For­eldrar hans rifj­uðu upp þessi orð hans í minn­ing­ar­grein um hann sem þau birtu í Morg­un­blað­inu.
„Þú sagðir oft við okkur úti að þú værir „þakk­látur“ og á heim­leið­inni sagðir þú að þú værir þakk­látur fyrir þessa ferð, það er dýr­mætt að vita. Þú not­aðir þetta orð „þakk­látur“ oft og það er eitt af mörgu sem við munum reyna að læra af þér, þakk­læti og vera góð við hvert annað!“

„Broskarlinn okkar“

Móðir og faðir Arons telja sig hafa lært margt af sam­ver­unni með honum og munu varð­veita hana. Þau eru þakk­lát fyrir að hafa fengið mánuð með honum og fjöl­skyld­unni allri áður en hann féll skyndi­lega frá. Þau lýsa honum í minn­ing­ar­grein­inni.

„Þú faðm­aðir okkur mörgum sinnum á dag, faðm­aðir okkur alltaf áður en þú fórst að sofa og pass­aðir upp á að eiga smá stund í faðmi okkar fyrir svefn­inn, lagðir höf­uðið að bringu okkar og þér leið þá svo vel og brostir þínu fal­lega brosi til okkar, það var svo ynd­is­legt og við búum við það það sem eftir er. Bros þitt var ein­stakt, enda köll­uðum við þig oft „broskar­l­inn okkar“. Þú fékkst okkur til að brosa bæði þegar við vorum eitt­hvað súr og líka utan þess og þá léstu okkur bara brosa, komst með fal­lega and­litið þitt fyrir framan and­litin á okkur og settir upp þitt ein­staka bros og hættir ekki fyrr en við brostum á móti, því­líkur eig­in­leiki! Þú sagðir mörgum sinnum á dag „mér þykir vænt um þig“ og „mér þykir vænt um ykkur“ við okkur hin í fjöl­skyld­unni, vænt­um­þykja þín var og er ómet­an­leg og það er eitt af mörgu sem við viljum læra af þínu lífs­skeiði hér á jörð­inni. Þú kenndir okkur hvað ást er dýr­mæt, hvað bros gerir mikla galdra og hvað ein­lægni og hrein­skilni er mik­il­væg. Við ætlum að taka þetta með okkur áfram lífs­veg­inn og við vitum að þú fyr­ir­gefur ef okkur tekst ekki nógu vel upp en við gerum okkar besta, þú hafðir mikil áhrif.“

Safnað fyrir fjölskylduna

Pétur og aðrir stór­fjöl­skyldu­með­limir og aðstand­endur hafa stofnað til söfn­unar fyrir fjöl­skyld­una til að reyna að lág­marka fjár­hags­á­hyggjur sem geta bæst við sorg­ina við ást­vina­missi. Pétur setti eft­ir­far­andi skila­boð á Facebook á dög­unum:  

„Kæru ætt­ingjar og vinir.
Síð­ast­lið­inn mánu­dag 10.08.2015 misstu þau Arnar og Sigurrós elsku Aron Andra son sinn. 

Aron Andri var 12 ára gam­all og var þetta óvænt og mikið áfall.
Við erum öll slegin og okkur langar til að gera svo mikið til að hjálpa þeim. 
Við munum styrkja þau og okkur langar að biðja ykkur um að hjálpa okkur að létta undir með þeim með því að aðstoða við þann mikla kostnað sem fylgir and­láti ást­vinar eins og varð­andi útför, vinnu­tap og fleira.
Minnum á að margt smátt gerir eitt stórt.
Ef þið sjáið ykkur fært um að hjálpa okkur að styrkja þau þá má leggja inn á reikn­ing: 528-14-404005 kt. 190771-3859.
Arnar faðir Arons Andra er skráður fyrir reikn­ingnum.
Með fyr­ir­fram þökk,
Aðstand­endur Arnars, Sig­ur­rósar og fjöl­skyldu.“

For­eldrar Arons kvöddu hann í fyrr­greindri minn­ing­ar­grein með harm og von í hjarta: „Sjáumst seinna elsku besti Aron, við elskum þig enda­laust og þú munt lifa áfram með okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár