Þorgerður talaði við Bjarna um að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn: „Ég ber ómælda virðingu fyrir honum“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir segir að sér sé mjög hlýtt til Bjarna Bene­dikts­sonar og að hann hafi verið góður fjár­mála­ráð­herra. „Það eru nokkrir dagar síðan hún var að ræða það við mig að fara fram fyrir okkar flokk,“ segir hann. Þor­gerður vill verða odd­viti Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Þorgerður talaði við Bjarna um að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn: „Ég ber ómælda virðingu fyrir honum“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­maður og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins til­kynntu Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í dag að þau hygð­ust ganga til liðs við Viðreisn. Í við­tali við Stöð 2 vildi hvor­ugt þeirra gagn­rýna Sjálf­stæð­is­flokk­inn til útskýr­ingar á brott­hvarfi sínu úr flokknum.

Bjarni Bene­dikts­son segir að Þor­gerður Katrín hafi haft orð á fram­boði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn við sig fyrir aðeins nokkrum dögum. Nú hefur hún hins vegar farið fram á að taka for­ystu­sætið í Suð­vest­ur­kjör­dæmi hjá Viðreisn, í sama kjör­dæmi og Bjarni leiðir lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Ég ber ómælda virð­ingu fyrir honum. Hann hefur verið góður fjár­mála­ráð­herra og staðið sig vel svona í meg­in­at­riðum,“ sagði Þor­gerður um Bjarna í við­tali við þau Þorstein í kvöld­fréttum Stöðvar 2.  

Þor­steinn vildi ekki taka afstöðu til þess hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri orð­inn of íhalds­samur né hvort flokk­ur­inn beitti sér ekki nægi­lega fyrir við­skipta­frelsi og frjáls­ræði. „Ég er í sjálfu sér ekki að taka afstöðu til þess,“ sagði Þor­steinn aðspurður um þetta.

Að sama skapi vildi Þor­gerður Katrín ekki svara spurn­ingum frétta­manns um hvað hefði orðið til þess að þau sögðu skilið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þau svör­uðu nær öllum spurn­ingum með því að tala á jákvæðum nótum um Viðreisn og þær breyt­ingar sem flokk­ur­inn boðar. 

„Meiri ást og kærleikur“

„Ég er að reyna að horfa á það þannig, hvað er það sem Viðreisn und­ir­strikar í sínum mál­flutn­ingi og það eru þær áherslur sem við Þor­steinn höfum skoðað mjög vel og viljum styðja og yfir­skriftin yfir það allt er meira frjáls­lyndi, meiri ást og kær­leikur,“ sagði Þor­gerður.  

Þegar frétta­maður spurði hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti ekki sinnt þessu hlut­verki sagði Þor­gerður: „Þú getur ekki fengið alla vega mig, og ég veit ekki Þorstein, til að tala illa um Sjálf­stæð­is­flokk­inn, það er ekki til­gang­ur­inn með þessu. Við erum að segja að Viðreisn er ákveðið afl sem ætlar að halda áfram og ýta undir þessi frjáls­lyndu gildi sem við viljum styðja, en þetta snýst ekki um Sjálf­stæð­is­flokk­inn, þetta snýst um Viðreisn.“  

Síðar í við­tal­inu sagði svo Þor­gerður: „Eins og ég segi, þú færð mig ekki til að tala eitt­hvað sér­stak­lega um Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann hefur magn­aða sögu, hann er með ákveðna stefnu, með fullt af góðu fólki og ég óska því vel­farn­aðar, en við erum að stíga annað skref.“ 

„Mér er mjög hlýtt til Bjarna“

Þá var hún spurð hvernig henni lit­ist á að etja kappi við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. „Mér er mjög hlýtt til Bjarna og það breyt­ist ekki,“ svar­aði hún og sagði jafn­framt að það væri fleira sem sam­eini þau Bjarna heldur en sundri. Þor­gerður er að eigin sögn enn skráð í Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagð­ist í dag undr­ast fram­boð Þor­gerðar Katrínar, þar sem hún hafi aðeins fyrir nokkrum dögum rætt mögu­legt fram­boð sitt til Alþingis fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Þetta er dálítið skrítin staða til að vera í þegar það eru nokkrir dagar síðan hún var að ræða það við mig að fara fram fyrir okkar flokk,“ sagði í sam­tali við Stöð 2.

Ekki náð­ist í Þorgerði Katrínu við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár