Meint morðhótun á borði lögreglu eftir að útvarpsstjóri auglýsti heimilisfang bloggara

Áhan­gendur Útvarps Sögu hvetja til ofbeldis og ofsókna. Gunnar Waage hefur til­kynnt morð­hótun í sinn garð til lög­reglu og fer í skýrslu­töku vegna máls­ins á þriðju­dag­inn.

Meint morðhótun á borði lögreglu eftir að útvarpsstjóri auglýsti heimilisfang bloggara

Gunnar Waage, trommu­leik­ari og umsjón­ar­maður vefs­ins Sand­kass­inn.com, hefur til­kynnt morð­hótun í sinn garð til lög­reglu og á pant­aðan tíma í skýrslu­töku vegna máls­ins á þriðju­dag­inn í næstu viku. Þetta segir hann í sam­tali við Stundina.

Ummælin birt­ust á Facebook-síðu Arn­þrúðar Karls­dóttur, útvarps­stjóra Útvarps Sögu, í gær og hljóða svo: „Senda bara nokkra vaska menn og þagga niður í honum í eitt skipti fyrir öll ;)“

Gunnar hefur ítrekað gagn­rýnt Arnþrúði Karls­dóttur og Útvarp Sögu fyrir ras­isma og hat­urs­orð­ræðu gegn minni­hluta­hópum. 

Arn­þrúður hefur meðal ann­ars brugð­ist við þess­ari gagn­rýni með því að hringja í vinnu­veit­anda Gunnars auk þess sem hún hefur aug­lýst sér­stak­lega heim­il­is­fang hans á umræðu­hópi Íslensku Þjóð­fylk­ing­ar­innar. Meint morð­hótun kom fram í kjöl­far þess. 

„Arn­þrúður virð­ist vera full­með­vituð um þessi ummæli, tjáir sig bæði fyrir og eftir, og virð­ist láta sér vel líka. Hún fjar­lægir ekki ummælin, en þau eru látin falla í kjöl­far þess að hún aug­lýsti sér­stak­lega adress­una mína á Facebook,“ segir Gunnar Waage í sam­tali við Stundina. 

Arn­þrúður birti eft­ir­far­andi færslu í gær:

Einn þeirra sem setur inn athuga­semd, Stefán Auðunn Stef­áns­son, vill að fólk taki sig saman, sæki mann­inn og afhendi hann lög­reglu. P Val­gerður Krist­jáns­dóttir hvetur til þess að fjöldi fólks taki sig saman og krefj­ist þess að Gunnar Waage verði lok­aður inni á stofnun, til dæmis Kleppi. Þá skrifar Aðal­heiður Magn­ús­dóttir, sem titlar sig sem starfs­mann Kópa­vogs­bæjar: „Bara senda hann til ISIS. hann verður sá fyrsti sem þeir nota í sprengju­fóður“

Gunnar Waage hefur svarað ýmsum af ávirð­ingum Arn­þrúðar á eigin Facebook-síðu:

Kvenna­blaðið greindi frá því í gær að hlust­andi Útvarps sögu hefði hringt inn og hvatt til þess að rík­is­starfs­menn væru skotnir í höf­uðið. Pétur Gunn­laugs­son, sem stýrir Útvarps Sögu ásamt Arnþrúði, hreyfði ekki mót­bárum við mál­flutn­ingi inn­hringj­and­ans sem sagð­ist vilja „setja kúlu í haus­inn“ á háskóla­mennt­uðum rík­is­starfs­mönnum og láta „salla niður þetta óþarfa lið sem eru hér afætur í þjóð­fé­lag­inu“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umræða um rasisma

Erlent

Óttast að falskar fréttir grafi undan lýð­ræð­inu í Evrópu

Svoköll­uðum fölskum fréttum hefur fjölgað veru­lega í Þýska­landi á nýju ári. Facebook hefur gert samn­ing við rann­sókn­ar­fjöl­mið­il­inn Correctiv um að sann­reyna þýskar fréttir. Svipaðir samn­ingar hafa verið gerðir í Banda­ríkj­unum. Frönsk og þýsk stjórn­völd ótt­ast að falskar fréttir geti haft veru­leg áhrif á kosn­inga­úr­slit í lönd­unum tveimur. Stjórn­mála­menn nýta sér orð­ræð­una um falskar fréttir í þeim til­gangi að grafa undan gagn­rýn­inni umræðu.
Fréttir

Vill að þeir sem sýna af sér „óæski­lega hegðun“ verði til­kynntir til stjórn­valda svo hægt sé að „grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða“

Ólöf Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra og odd­viti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, telur að fram undan séu tímar þar sem grípa þurfi til aðgerða í þágu öryggis og friðar sem fólk kunni að upp­lifa sem tak­mörkun á mann­rétt­indum sínum. Vaxandi útlend­inga­hatur sér­stakt áhyggju­efni.
FréttirUmræða um rasisma

Boðist til að falla frá mál­sókn gegn þögn um fram­bjóð­anda Fram­sókn­ar­flokks­ins

Lög­fræð­ing­ur­inn Sævar Þór Jónsson, sem er í þriðja sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, sendi Stund­inni inn­heimtu­kröfu upp á 7,5 millj­ónir króna vegna birt­ingar mynda af Arnþrúði Karls­dóttur sem Útvarp Saga not­aði til kynn­ingar á dag­skrár­liðum. Fulltrúi Sævars bauðst til þess að fallið yrði frá kröf­unni gegn því að Sævari yrði haldið fyrir utan umfjöllun blaðs­ins um útvarps­stöð­ina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár