Þekktur hægriöfgamaður boðar komu sína til Íslands

Tommy Robinson hefur vakið athygli fyrir áróður gegn múslimum og baráttu sína fyrir hertri innflytjenda­stefnu.

Tommy Robinson, breskur þjóðernis­sinni og hægri­öfgamaður, boðar komu sína til Íslands á Twitter. „Mér var boðið á viðburð á Íslandi næsta sumar. Get ekki beðið, enda hefur mig alltaf langað að heimsækja landið,“ skrifar hann. 

Tommy hefur gegnt forystu­hlutverki í þjóðernis­samtökunum The English Defence League, var um tíma vara­formaður Breska frelsis­flokksins og nýtur mikillar virðingar meðal rasista, múslima­hatara og hægri­róttæklinga í Evrópu og Banda­ríkjunum. Hann hefur setið í fangelsi fyrir fjársvik og að villa á sér heimildir en jafnframt verið dæmdur til að sinna samfélags­þjónustu vegna ógnandi hegðunar eftir íþrótta­viðburð í heimabæ sínum, Luton. Þar rekur Tommy ljósa­bekkjastofu. 

Pegida-hreyf­ingin í Þýska­landi hefur barist gegn áhrifum múslima í Evrópu. Tommy Robinson hefur tekið þátt í að hleypa slíkri hreyf­ingu af stokk­unum í Bret­landi.

Viðar Þorsteinsson, heim­spekingur sem hefur tekið þátt í stofnun Sósíalista­flokksins, tjáir sig um komu Tommy Robinson á Facebook og hvetur fólk til að koma í veg fyrir að hann fái að láta ljós sitt skína á Íslandi.

Hann segir að samtök um ofbeldi gegn minnihluta­hópum og brot á mann­réttindum þeirra geti ekki sjálf ætlast til þess að fá að njóta mann­réttinda á borð við funda- og tjáningar­frelsi. „Þegar þau ógna tilveru saklauss fólks með opinberum viðburðum í almanna­rýminu þá er það skylda allra sem vilja standa vörð um lýðræði, mann­réttindi og tilvistar­öryggi minnihluta­hópa að stöðva slíkt með öllum ráðum. Tommy Robinson getur því átt von á mótstöðu ætli hann eða íslensk nýnasistsamtök að efna til funda hér á landi,“ skrifar hann. 

Aðdáendum Tommy Robinson líst almennt vel á fyrir­hugaða Íslandsför hans, en sumir hafa áhyggjur. „Þarna var eitrað fyrir Robert Spencer. Farðu varlega,“ segir vinkona Tommys og vísar þar til þekkts múslima­andstæðings sem kom til Íslands síðasta sumar og sagði farir sínar ekki sléttar. Einn af skoðana­bræðrum Tommys á Twitter býðst til að útvega honum lið vaskra manna, eins konar lífvarða­sveit, sem geti fylgt honum um Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár