Vill að þeir sem sýna af sér „óæskilega hegðun“ verði tilkynntir til stjórnvalda svo hægt sé að „grípa til fyrirbyggjandi aðgerða“

Ólöf Nordal, innan­ríkis­ráðherra og oddviti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi suður, telur að fram undan séu tímar þar sem grípa þurfi til aðgerða í þágu öryggis og friðar sem fólk kunni að upplifa sem takmörkun á mann­réttindum sínum. Vaxandi útlendinga­hatur sérstakt áhyggju­efni.

Fram undan eru tímar þar sem grípa þarf til ýmissa aðgerða til að tryggja öryggi og frið, meðal annars úrræða sem fólk gæti upplifað sem takmörkun á mann­réttindum sínum. Þetta er fullyrt í skýrslu Ólafar Nordal innan­ríkis­ráðherra um mann­réttindamál sem dreift var á Alþingi í gær. Í skýrslunni er hvatt til þess „að einstaklingar sem sýna af sér óæskilega hegðun séu tilkynntir til stjórn­valda svo hægt sé að grípa til fyrir­byggjandi aðgerða“. Ekki kemur fram hvort þarna sé verið að boða forvirkar rannsóknar­heimildir, en haft hefur verið eftir Ólöfu Nordal í fjöl­miðlum að rétt sé að skoða mögu­leikann á heimildum til slíkra rannsóknar­úrræða.

„Fram undan eru tímar þar sem ljóst er að grípa verður til ýmissa aðgerða á grund­velli alþjóða­samninga til að tryggja öryggi og frið. Hætt er við að litið verði á ýmsar af þeim aðgerðum sem takmörkun á mann­réttindum einstaklinga þrátt fyrir að slíkir samningar séu almennt gerðir með þeim fororðum að virða beri mann­réttindi að fullu,“ segir í kafla skýrslunnar sem fjallar um helstu áskoranir sem Íslendingar standa frammi fyrir. „Má hér nefna sem dæmi upplýsinga­öflun vegna öryggis­mála annars vegar og friðhelgi einkalífs og vernd þess hins vegar. Mikilvægt er því að skapa traust um þær aðgerðir sem hugsanlega munu teljast nauðsynlegar.“ 

Bent er á að umræða um öryggismál sé nátengd mann­réttindum. „Í sinni einföldustu mynd má skilgreina öryggi einstaklingsins eða samfélagsins út frá því hvort mann­réttindi séu virt bæði af stjórn­völdum og öðrum,“ segir í skýrslunni.

Vaxandi útlendingahatur sérstakt áhyggjuefni

Fram kemur að öfga­hyggja og vaxandi útlendinga­hatur vegna komu hælis­leitenda og flótta­manna til Evrópu sé sérstakt áhyggju­efni.

„Barátta gegn öfga­hyggju og haturs­glæpum er mikil­vægur liður í því að tryggja mann­réttindi til framtíðar. Stjórn­völd þurfa að móta sér stefnu um forvarnir gegn öfga­hyggju. Aukið samstarf félags­þjónustu og lögreglu getur skipt sköpum í barátt­unni gegn öfga­hyggju. Einnig þarf að byggja upp traust á milli almennings og stjórn­valda þannig að einstaklingar sem sýna af sér óæskilega hegðun séu tilkynntir til stjórn­valda svo hægt sé að grípa til fyrir­byggjandi aðgerða. Viðbrögð stjórn­valda þurfa að vera með áherslu á forvarnir og að reynt sé að aðstoða viðkomandi einstaklinga til að taka eðlilegan þátt í samfélaginu. Má í þessu sambandi benda á að dönsk stjórn­völd hafa sett sér stefnu um ,,de-radicalisation“ sem byggir á hand­leiðslu fyrir einstaklinga sem aðhyllast öfga­hyggju. Samstarfið byggir á náinni samvinnu skóla, félags­þjónustu og lögreglu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár