Þjóðin hefur þegar kosið um atriðin sem Bjarni vill láta breyta í stjórnarskránni

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að breyta afmörk­uðum atriðum í stjórn­ar­skránni sam­hliða for­seta­kosn­ing­unum. Stjórn­ar­skrár­fé­lagið bendir á að þegar hafi verið kosið um þau og breyt­ing­arnar sam­þykktar árið 2012.

Þjóðin hefur þegar kosið um atriðin sem Bjarni vill láta breyta í stjórnarskránni
Vill að kosið verði aftur um stjórn­ar­skrá Bjarni Bene­dikts­son skrif­aði grein í Morg­un­blaðið þar sem hann lagði til að kosið yrði um afmark­aðar breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. Mynd: Pressphotos

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill að kosið verði um afmark­aðar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá Íslands sam­hliða for­seta­kosn­ingum á næsta ári, en Stjórn­ar­skrár­fé­lagið bendir á að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um nýja stjórn­ar­skrá hafi þegar farið fram 20. októ­ber 2012, þegar meiri­hluti kjós­enda sam­þykkti að leggja til­lögur stjórn­laga­ráðs til grund­vallar frum­varpi um nýja stjórn­ar­skrá. 

Bjarni leggur til að kosið verði um að bæta við stjórn­ar­skrána ákvæðum sem varða umhverfis- og auð­linda­mál, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum og tak­markað fram­sal veiði­heim­ilda.

Kosið um það sama áður

Í ályktun Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, félags áhuga­fólks um nýja stjórn­ar­skrá, er bent á að öll þau atriði sé að finna í þeim drögum að stjórn­ar­skrá sem þegar hafi verið sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. „Þar sem umrætt frum­varp fól í sér nýja stjórn­ar­skrá, en ekki við­bætur við þá gömlu, er ljóst að hug­myndir Bjarna Bene­dikts­sonar um fram­vindu þessa máls eru í and­stöðu við vilja meiri­hluta kjós­enda. Ef það er hins vegar ein­beittur vilji þings­ins að ein­skorða sig við þessi til­teknu ákvæði, þá er þau öll að finna í þeirri stjórn­ar­skrá sem þjóðin lýsti yfir­gnæf­andi stuðn­ingi við í umræddri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

64 pró­sent lands­manna sam­þykktu nýja stjórn­ar­skrá í kosn­ing­unum 2012, en 32 pró­sent greiddu atkvæði á móti. Auk þess var sam­þykkt að nátt­úru­auð­lindir, sem ekki eru í einka­eigu, yrðu lýstar þjóð­ar­eign, að ákvæði yrði um þjóð­kirkju á Íslandi, að per­sónu­kjör yrði heim­ilað í meira mæli en nú er, að atkvæði kjós­enda alls staðar af land­inu myndi vega jafnt í kosn­ingum og að ákvæði yrði í stjórn­ar­skrá um að til­tekið hlut­fall kjós­enda gæti knúið fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár