Þingmenn Framsóknarflokksins vildu kynna fjárlög í miðri kosningabaráttu

Vigdís Hauks­dóttir vill slíta þingi á mánu­dag­inn og fleiri úr þing­liði Fram­sókn­ar­flokks­ins eru ósáttir við þá nið­ur­stöðu að fjár­laga­frum­varp verði ekki lagt fram fyrr en eftir kosn­ingar.

Þingmenn Framsóknarflokksins vildu kynna fjárlög í miðri kosningabaráttu
Vildu kosn­inga­fjár­lög Fram kemur í bréfi Gunnars Braga að á síð­asta þing­flokks­fundi hafi þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins lýst vilja sínum til að fjár­laga­frum­varp yrði lagt fram fyrir kosn­ingar. Ljós­mynd­ari Stund­ar­innar tók myndir af fund­ar­höld­unum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins vildu að lagt yrði fram fjár­laga­frum­varp fyrir kosn­ing­arar í haust og tjáðu þann vilja sinn á síð­asta þing­flokks­fundi.

Þetta kemur fram í bréfi sem Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sendi þing­liði Fram­sókn­ar­flokks­ins í gær. Eyjan vitnar í bréf Gunnars Braga og segir að þar sé gagn­rýnt að fjár­laga­frum­varp verði ekki lagt fram fyrir kosn­ingar: 

Það hefur ekki verið afgreitt innan fram­sókn­ar­flokks­ins. Ekki meðal ráð­herra né þing­flokks. Reyndar var alveg skýrt á síð­asta þing­flokks­fundi að þeir sem tjáðu sig vildu fjár­lög. Mér vit­an­lega var hvorki dag­setn­ing né fjár­laga­málið rætt við for­mann flokks­ins.

Þá kemur fram að þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins séu óánægðir með að „halda út í kosn­inga­bar­áttu án þess að geta kynnt fjár­laga­frum­varp sem byggir á árangri síð­ustu ára í stjórn­ar­sam­starf­inu“.

Eftir að flýt­ingu þing­kosn­inga var heitið í apríl stefndi rík­is­stjórnin lengi vel að því að lagt yrði fram frum­varp til fjár­laga rétt áður en gengið yrði til kosn­inga. Hefði þetta gengið eftir hefði kynn­ing fjár­laga­frum­varps­ins og umræður um efni farið fram á sama tíma og kosn­inga­bar­átta stjórn­mála­flokk­anna er í algleym­ingi.  

Á fimmtu­dag­inn fund­uðu Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra með full­trúum stjórn­ar­and­stöð­unnar og stað­festu að kosið yrði til Alþingis þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Fram kom í við­tali við Bjarna á vef RÚV að hann teldi að klára mætti helstu mál rík­is­stjórn­ar­innar fyrir þann tíma en að fjár­laga­frum­varp yrði ekki lagt fram fyrr en eftir kosn­ingar.

Gunnar Bragi og fleiri úr þing­liði Fram­sókn­ar­flokks­ins virð­ast ósáttir við þessa nið­ur­stöðu. Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, tjáði sig um málið á Facebook í dag og skrif­aði:

Ég tel að það sé lang best að slíta þing­inu á mánu­dag­inn og boða til kosn­inga innan 6 vikna eins og lög mæla um. Þetta segi ég til að hlífa lands­mönnum við bulli, vit­leysu og fyrru sem verður ann­ars næstu vik­urnar. Í hádeg­is­fréttum voru tvö mál komin strax í ágrein­ing – þ.e. búvöru­samn­ingar og vega­fram­kvæmdir – þetta verður óbæri­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár