„Þetta mál er í skásta falli fullkomið klúður frá upphafi til enda“

Leka­málið til umfjöll­unar á Alþingi. Helgi Hrafn Gunn­ars­son seg­ist ótt­ast að málið verði laus endi það sem eftir er af stjórn­mála­sög­unni.

„Þetta mál er í skásta falli fullkomið klúður frá upphafi til enda“

„Málinu er ekki lokið. Ég ótt­ast að því ljúki aldrei. Ég ótt­ast að þetta mál verði laus endi það sem eftir er af stjórn­mála­sög­unni,“ sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, þegar með­ferð trún­að­ar­gagna í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, leka­málið, var til umfjöll­unar á Alþingi í dag. Umræðan kemur í kjöl­far skýrslu stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem kom út í síð­ustu viku. 

Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, tók fyrst til máls. Hún sagði Alþingi Íslend­inga sett í afar sér­kenni­lega stöðu. „Hér mæli ég fyrir meiri­hluta­á­liti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar sem sett er fram við minni­hluta­á­lit nefnd­ar­innar sem eru við­brögð minni­hlut­ans í nefnd­inni við áliti umboðs­manns Alþingis um mál­efni fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra. Virðu­legi for­seti, ég finn þess­ari máls­með­ferð hvergi stað í þing­skap­ar­lögum og er eins­dæmi í sögu þings­ins,“ sagði hún og lagði til að sett yrði á fót laga­skrif­stofa við þingið sem hefði meðal ann­ars það hlut­verk að skera úr um hvaða mál séu þing­tæk og hver ekki.

Líkt og Stundin hefur fjallað um sögðu þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans sig frá mál­inu undir lok máls­ins og sendu frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að mál­inu hafi lokið með áliti umboðs­manns Alþingis og afsögn Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra. Vigdís árétt­aði þessa afstöðu meiri­hlut­ans. „Virðu­legi for­seti, ég ítreka meiri­hluta meiri­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar – mál­inu er lokið.“ 

Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna, fór næstur yfir skýrslu minni­hluta nefnd­ar­innar og nið­ur­stöðu hennar, en minni­hlut­inn gerir alvar­legar athuga­semdir við upp­lýs­inga­gjöf ráð­herra sem hafi verið til þess fallin að draga umfjöllun um málið óþarf­lega á lang­inn. 

Spurði út í kostnað vegna málsins

Val­gerður Bjarna­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, skor­aði á Hönnu Birnu til þess að útskýra hvað hún hafi átt við með þegar hún tal­aði um ljótan póli­tískan leik. Þá sagði hún umhugs­un­ar­vert að það þurfti saka­mála­rann­sókn til þess að leiða fram sann­leik­ann í þessu máli. 

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fjall­aði um hlut­verk stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Hann sagði engar for­sendur fyrir nefnd­ina að gera meira með málið enda lægju nið­ur­stöður fyrir að lok­inni saka­mála­rann­sókn og áliti umboðs­manns. „Ég lít svo á að nefnd eigi ekki að setja sig í dóm­ara­hlut­verk og ákveða hver segi satt eða ósatt, eða meta hvort ein­hver hafi ekki upp­fyllt sann­leiks­skyldu sína gagn­vart Alþingi,“ sagði hann meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár