Bjarni Benediktsson stóð ekki við loforð til aldraðra en sakaði spyril um rangfærslu

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði rétta full­yrð­ingu frétta­kon­unnar Sigríðar Hagalín Björns­dóttur „alranga“ en við­ur­kenndi skömmu síðar að rík­is­stjórnin væri ekki búin að standa fylli­lega við lof­orð flokks­ins um afnám tekju­teng­inga elli­líf­eyris.

Bjarni Benediktsson stóð ekki við loforð til aldraðra en sakaði spyril um rangfærslu

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði „alrangt“ hjá Sigríði Hagalín, umsjón­ar­manni leið­togaum­ræðna Rík­is­út­varps­ins í gær, að rík­is­stjórnin hefði ekki staðið við lof­orð sem hann gaf öldruðum um afnám tekju­teng­ingar elli­líf­eyris í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga.

Ásökunin um að spyrill­inn færi með rangt mál stenst ekki skoðun. Tekju­teng­ing elli­líf­eyris er ennþá hluti af líf­eyr­is­kerfi Trygg­inga­stofn­unar og við­ur­kenndi Bjarni skömmu síðar í þætt­inum að grunn­líf­eyrir líf­eyr­is­trygg­inga skerð­ist ennþá vegna atvinnu­tekna. Þá sagð­ist hann ekki vera að halda því fram að verk­inu væri lokið.

 

„Fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar send­irðu eldri borg­urum bréf, lof­aðir að aft­ur­kalla tekju­skerð­ingu aldr­aðra frá eft­ir­hrunsár­unum og afnema tekju­teng­ingar elli­líf­eyris, hvers vegna var ekki staðið við þessi lof­orð?“ spurði Sigríður Hagalín, annar af umsjón­ar­mönnum leið­togaum­ræðna.

Vísaði hún þar til bréfs (sjá hér til hliðar) sem Bjarni sendi eldri borg­urum þann 22. apríl 2013 rétt áður en gengið var til kosn­inga.

Fram kemur í bréf­inu að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætli að „aft­ur­kalla kjara­skerð­ingu elli­líf­eyr­is­þega, sem komið var á árið 2009“ en jafn­framt að flokk­ur­inn ætli að „afnema tekju­teng­ingar elli­líf­eyris“. 

Þegar Sigríður Hagalín spurði Bjarna hvers vegna ekki hefði verið staðið við þessi lof­orð sagði hann: „Þetta er bara alrangt hjá þér. Við þessi lof­orð var staðið“ og bætti við: „Fyrsta verk rík­is­stjórn­ar­innar var að afnema tekju­teng­ingar vegna líf­eyr­is­greiðslna á móti elli­líf­eyri, við lög­festum það sum­arið 2013.“

Bjarni benti jafn­framt á að rík­is­stjórnin hefði hækkað frí­tekju­mörk og lækkað skerð­ing­ar­hlut­föll hjá öldruðum. Skömmu síðar sagði hann að þótt tekju­teng­ing vegna líf­eyr­is­greiðslna hefði verið afnumin væri rétt hjá spyrlinum að „það er enn skert vegna atvinnu­tekna“. 

Á Vís­inda­vefnum er að finna sam­an­tekt á breyt­ingum sem orðið hafa á tekju­teng­ingu elli­líf­eyris á tíma­bil­inu apríl 2013 fram í sept­em­ber 2016. Rakið er hvernig frí­tekju­mörk hafa hækkað og skerð­ing­ar­hlut­föll lækkað í tíð sitj­andi rík­is­stjórnar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár