Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í viðtali við Fréttablaðið í gær að hann hefði ekki staðfest þær siðareglur sem settar voru í stjórnartíð Jóhönnu Sigurðardóttur. Í ágúst árið 2014 sagði Sigmundur hins vegar í bréfi til Umboðsmanns Alþingis að ríkisstjórn hans ynni eftir þeim siðareglum sem samþykktar voru á síðasta kjörtímabili. Fram kom í bréfinu að ráðherrar í ríkisstjórn hans hefðu fengið kynningu á reglunum eftir stjórnarskiptin auk þess sem siðareglurnar væru hluti af handbók ráðherra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir