Stóra grillspurningin

Hvenær hentar betur að nota kol en gas við að grilla?

Stóra grillspurningin

Það eru ýmis grund­vallará­grein­ings­mál sem ekki verður sátt um. Bítl­arnir eða Stones? PC eða Makki? Og í mínu ung­dæmi í Skaga­firði: Framsókn eða Sjálf­stæð­is­flokkur? Svo er það auð­vitað hið árs­tíða­bundna en árvissa ágrein­ings­mál – kol eða gas?

Ég hef aldrei getað gert almenni­lega upp við mig hvorn mál­stað­inn ég á að taka í þessum ágrein­ings­málum. Mér fannst Bítl­arnir sæt­ari en Stones meira spenn­andi, ég á Makka heima en nota PC í vinn­unni og finn lít­inn mun. Ég ólst upp á heim­ili þar sem bjuggu bæði eld­heitir sjálf­stæðis- og fram­sókn­ar­menn svo að ég ákvað að taka allt aðra afstöðu í líf­inu. Og mér finnst gas­grill miklu þægi­legra; það er þó eitt­hvað við kola­grill sem kitlar mig en ég nenni samt aldrei að nota það.

Umdeild áhrif kola

Kola­grill og gas­grill eru ólík á margan hátt en útkoman verður samt meira og minna hin sama. Þeir sem kjósa gas­grill eru í meiri­hluta og benda á þæg­indin sem þeim fylgja. Kola­grilla­fólkið heldur því stað­fast­lega fram að kola­grillun gefi betra bragð og jafn­vel að það sé eina „ekta“ grill­elda­mennskan, það sé alveg eins hægt að nota ofn eða pönnu eins og að elda á gas­grilli.

Þetta með bragðmun­inn er reyndar umdeilt. Weber-fyr­ir­tækið, sem fram­leiðir bæði vönduð kola- og gas­grill, seg­ist hafa gert fjölda blindra bragð­próf­ana og í ljós hafi komið að fæstir geti greint bragðmun á milli matar sem grill­aður er við kol og gas.

Nathan Myhrvold, Microsoft-mað­ur­inn sem fékk brenn­andi áhuga á mat­ar­gerð, hefur eytt millj­ónum doll­ara í rann­sóknir á mat­ar­vís­indum og unnið til heims­meist­ara­tit­ils í barbecue-elda­mennsku, segir í bók sinni Modern­ist Cuisine: „Kolefni er bara kolefni; þegar það brennur skilar það sem slíkt engu bragði í mat­inn sem er verið að grilla.“ Hann segir að spurn­ingin ætti ekki að vera hvers konar kol eigi að nota, heldur hvort eigi að nota kol yfir höfuð.

Flestir telja lík­lega að reyk­ur­inn sem gefur þetta ein­kenn­andi grill­bragð komi frá kol­unum en það eru ekki kolin sem skapa reyk­inn, hann verður að mestu leyti til þegar vökvi sem drýpur af matnum sem verið er að grilla (safi, fita og mar­íner­ing) lendir á kol­unum, brennur og gufar upp og reyk­ur­inn og gufan leika svo um mat­inn  og þétt­ist á yfir­borði hans. Flest 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár