Stjórnarliðar styðja tillögu Sigríðar og benda á að ráðherra hafi verið ósammála dómnefndinni

Meiri­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis styður til­lögu dóms­mála­ráð­herra um að víkja frá hæfn­is­mati nefndar við skipun dóm­ara í Lands­rétt. „Eigum við að leyfa Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn að stela dóms­vald­inu?“ spyr stjórn­ar­and­stöðu­þing­maður.

Stjórnarliðar styðja tillögu Sigríðar og benda á að ráðherra hafi verið ósammála dómnefndinni

Meiri­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis styður til­lögu dóms­mála­ráð­herra þess efnis að vikið verði frá mati nefndar um mat á umsækj­endum um dóm­ara­störf við skipun í Lands­rétt.

Tillaga ráð­herra felur í sér að fjórir umsækj­endur af þeim fimmtán sem dóm­nefndin taldi hæf­asta verða ekki skip­aðir dóm­arar en aðrir fjórir umsækj­endur verða skip­aðir í þeirra stað.

Á meðal þeirra sem dóms­mála­ráð­herra og meiri­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar vilja skipa þvert á mat dóm­nefnd­ar­innar eru Jón Finn­björns­son og Arn­fríður Ein­ars­dóttir.

Jón Finn­björns­son lenti í 30. sæti á lista dóm­nefnd­ar­innar, en hann er eig­in­maður Erlu S. Árna­dóttur sem var vinnu­veit­andi ráð­herra til margra ára hjá lög­manns­stof­unni Lex. Arn­fríður Ein­ars­dóttir er eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Brynjar er for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar og vinnur þannig náið með meiri­hluta nefnd­ar­innar.

„Meiri hlut­inn tekur fram að hann hefur fjallað um þær for­sendur sem liggja að baki til­lögu ráð­herra um til­nefn­ingar ein­stakra dóm­ara í Lands­rétt, þ.m.t. um að breyta út frá til­lögu dóm­nefndar, og fellst á þær,“ segir í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar sem birt­ist á vef Alþingis nú á ell­efta tím­anum. Full­trúar stjórn­ar­meiri­hlut­ans í nefnd­inni eru sjálf­stæð­is­menn­irnir Birg­ir Ármanns­son, Njáll Trausti Frið­berts­son, Vil­hjálm­ur Árna­son og Hildur Sverr­is­dóttir og Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar. Sagði Brynjar Níelsson sig frá mál­inu vegna fyrr­nefndra tengsla. 

Í nefnd­ar­á­lit­inu kemur fram að dóms­mála­ráð­herra telji enga form­galla hafa verið á með­ferð dóm­nefndar við mat á umsækj­endum. Eftir að dóm­nefnd skil­aði umsögn sinni til ráð­herra hafi ráð­herra sem veit­ing­ar­valds­hafi þurft að meta til­lög­urnar sjálf­stætt. „Fram kom að ráð­herra hefði hins vegar verið að hluta til ósam­mála vægi dóm­nefnd­ar­innar á ein­staka mats­þáttum, m.a. varð­andi þætti er lúta að dóm­ara­reynslu, þ.e. stjórn þing­halds, samn­ingu og ritun dóma og almenna starfs­hæfni,“ segir í álit­inu. „Bendir ráð­herra á að með því að gera ekki til­raun til þess að leggja tvo fyrr­nefndu þætt­ina til grund­vallar heild­ar­mati verði ekki annað ráðið en að reynsla dóm­ara hafi ekki fengið það vægi sem til­efni er til og gert er ráð fyrir í reglum nr. 620/2010 um störf dóm­nefndar sem fjallar um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti.“ 

„Eigum við að leyfa Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn að stela dóms­vald­inu?“ 

Mikil reiði hefur blossað upp í netheimum og meðal þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar vegna máls­ins. „Hvað er til ráða? Á að leyfa ráð­herra að skapa van­traust gagn­vart heilu nýju dóm­stigi með því að frekj­ast fram með órök­studda henti­sem­is­skoðun sína? Eigum við að leyfa Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn að stela dóms­vald­inu?“ skrifar Smári McCarthy, þing­maður Pírata, á Facebook en Píratar hafa hótað að leggja fram van­traust­s­til­lögu gegn dóms­mála­ráð­herra. Þá skrifar Oddný Harð­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar: „Tillaga dóms­mála­ráð­herra að skipan dóm­ara við nýjan Lands­rétt er hneyksli. Breyt­ingar hennar á til­lögu dóm­nefndar um hæf­ustu umsækj­endur er órök­studd og virð­ist byggð á hug­lægu mati. Fram­ganga ráð­herr­ans grefur undan trausti og er fúsk leyfi ég mér að segja. En stjórn­ar­liðar ætla styðja fúskið.“

Í áliti meiri­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis kemur fram að fyrir nefnd­inni hafi verið skiptar skoð­anir um hvort ráð­herra eigi að vera bund­inn af umsögn dóm­nefnda. „Með því mundi dóm­nefnd í raun ráða hverjir verði skip­aðir dóm­arar. Ef ráð­herra væri und­an­tekn­ing­ar­laust skylt að fara eftir áliti dóm­nefndar væri ábyrgðin á skipun dóm­ara hjá stjórn­valdi sem er ekki ábyrgt gagn­vart þing­inu en slík til­högun hefur sums staðar þótt orka tví­mælis,“ segir í álit­inu. „Meiri hlut­inn tekur fram að með þeirri til­högun sem sam­þykkt var með lögum á Alþingi um að ráð­herra sé óheim­ilt að skipa í dóm­ara­emb­ætti mann sem dóm­efnd hefur ekki talið hæf­astan meðal umsækj­enda, nema Alþingi sam­þykki til­lögu ráð­herra um heim­ild til að skipa í emb­ættið annan nafn­greindan umsækj­enda sem full­nægir að mati dóm­nefndar skil­yrðum lag­anna, er tekin skýr afstaða til þess að veit­ing­ar­valdið er hjá ráð­herra en ekki hjá dóm­nefnd­inni. Til þess að til­laga ráð­herra sem víkur frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar öðlist gildi þarf hún engu síður aðkomu ann­ars hand­hafa rík­is­valds­ins, í þessu til­viki lög­gjaf­ar­sam­kom­unnar.“

Full­trúar meiri­hlut­ans í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd full­yrða að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hafi litið til jafn­rétt­is­sjón­ar­miða þegar hún setti til­lögu sína fram. „Meiri hlut­inn tekur fram að nái til­laga ráð­herra fram að ganga hefur ekki áður verið sett á lagg­irnar jafn mik­il­vægt nýtt emb­ætti með svo jöfnum kynja­hlut­föllum sem hér um ræðir.“ Eins og Stundin hefur áður greint frá hefur Sigríður lýst sig mót­fallna því að litið sé sér­stak­lega til kynja­sjón­ar­miða þegar skipað er í dóm­ara­stöður. Þann 7. febr­úar síð­ast­lið­inn sagði hún að ekki yrðu gerðar ráð­staf­anir til að gefa slíkum sjón­ar­miðum vægi við hæfn­is­mat og skipan í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. „Tel ég ekki til vel­farn­aðar fallið almennt að hugsa skipan í jafn mik­il­væg emb­ætti og dóm­ara­störf eru með þeim hætti sem fyr­ir­spyrj­andi er að kalla eftir að mögu­lega sé gert, ef ég skil hann rétt, að litið sé sér­stak­lega til kynja­sjón­ar­miða,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár