Stjórnarliðar skrópa á nefndarfundi: „Úti í kjördæmunum að sinna kosningabaráttunni“

Enginn af þremur full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fjár­laga­nefnd mætti á fundi nefnd­ar­innar í vik­unni og aðeins tveir stjórn­ar­liðar mættu á fund alls­herjar- og mennta­mála­nefndar í gær. „Ekki getur gengið að það sé slík mæt­ing á nefnd­ar­fundi að það standi nefnd­ar­starf­inu fyrir þrifum,“ segir for­seti Alþingis.

Stjórnarliðar skrópa á nefndarfundi: „Úti í kjördæmunum að sinna kosningabaráttunni“

Aðeins tveir þing­menn stjórn­ar­flokk­anna mættu á fundi fjár­laga­nefndar á þriðju­dag og mið­viku­dag, þau Páll Jóhann Pálsson og Vigdís Hauks­dóttir, en hvor­ugt þeirra býður sig fram í Alþing­is­kosn­ing­unum sem fram fara í lok mán­aðar.

Enginn af þremur full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fjár­laga­nefnd mætti á fund­ina þrátt fyrir að á dag­skrá væru mál sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur sett á odd­inn; ann­ars vegar fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á lögum um Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins og hins vegar ný heild­ar­lög um opin­ber inn­kaup. 

Þegar alls­herjar- og mennta­mála­nefnd fund­aði í gær voru einnig aðeins tveir full­trúar stjórn­ar­liða við­staddir, þær Líneik Anna Sæv­ars­dóttir og Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir. Þá hefur Björt Ólafs­dóttir, þing­kona Bjartrar fram­tíðar, kvartað undan því að hvorki fjár­mála­ráð­herra né inn­an­rík­is­ráð­herra, þ.e. for­maður og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi verið við­stödd óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurn­ar­tíma á mánu­dag og full­yrt að þetta sé vegna þess að þau hafi verið að sinna kosn­inga­bar­átt­unni.

Óvissa og ósætti ríkir um fram­hald þing­funda. Hafa þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýnt stjórn­ar­liða harð­lega fyrir að skrópa á fundi fasta­nefnda þings­ins og heyja kosn­inga­bar­áttu meðan minni­hlut­inn sinnir þing­störfum. Árni Páll Árnason, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, telur að með þessu áfram­haldi þurfi að kvarta til Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu, sem ann­ast meðal ann­ars kosn­inga­eft­ir­lit, enda skekki það sam­keppni milli stjórn­mála­flokka í aðdrag­anda kosn­inga að stjórn­ar­meiri­hlut­inn nýti sér yfir­burða­stöðu sína á Alþingi til að heyja kosn­inga­bar­áttu á kostnað minni­hlut­ans.  

„Stjórn­ar­meiri­hlut­inn er hættur á þessu þingi, hann er hættur að vinna. Ég sat nærri því fjög­urra klukku­stunda fund í fjár­laga­nefnd í gær um mik­il­vægt mál sem hér er á dag­skránni, líf­eyr­is­mál opin­berra starfs­manna. Þar voru tveir þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans og báðir að hætta á þingi. Aftur í morgun voru sömu tveir mættir einir í fjár­laga­nefnd,“ sagði Árni Páll í ræðu undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta í gær. „Þarf frek­ari vitn­anna við? Það er eng­inn þing­maður stjórn­ar­meiri­hlut­ans sem hyggur á end­ur­kjör sem virðir þingið mæt­ingu. Þeir mæta ekki. Þetta gengur ekki. Fjár­laga­nefnd var þannig skipuð tvo morgna í röð að þar sjást ekki þing­menn aðrir en þeir sem ekki hyggja á end­ur­kjör. Þetta er grafal­var­legt mál. Hæst­virtur for­seti verður að taka stjórn þings­ins í sínar hendur, hann hefur tólin og tækin. Hann verður að gera hlé á þing­fundum þangað til að stjórn­ar­meiri­hlut­inn kemur með mála­lista og það liggur í augum uppi að það geta ekki verið ágrein­ings­mál því að tím­inn til að ræða ágrein­ings­mál er úti þegar starfs­á­ætlun er lokið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár