„Skottulækningar, bull og hræðsluáróður“ í Háskóla Íslands

Samtök sem berj­ast gegn bólu­setn­ingu barna héldu fyr­ir­lestur í Háskóla Íslands. Háskóla­kenn­arar segja það ótækt að háskól­inn setji nafn sitt við slíkt. Sviðs­stjóri kennslu­mála segir að fyr­ir­lest­ur­inn hafi sloppið í gegn. „Getur haft mjög alvar­legar afleið­ingar í sam­fé­lag­inu,“ segir doktor í tauga­vís­indum.

„Skottulækningar, bull og hræðsluáróður“ í Háskóla Íslands
And­stæð­ingur bólu­setn­inga barna Suzanne Hump­hries hélt fyr­ir­lestur um bólu­setn­ingar í Háskóla Íslands, sem kenn­arar við skól­ann telja geta haft mjög slæmar afleið­ingar í sam­fé­lag­inu. Mynd: Youtube

Margir kenn­arar Háskóla Íslands eru ósáttir við skól­ann vegna fyr­ir­lest­urs­ins „Saga bólu­setn­ingar“ sem hald­inn var á Háskóla­torgi í gær. Þrátt fyrir hlut­laust nafn var um að ræða fyr­ir­lestur á vegum „Heilsu­frelsis“ sem berst meðal ann­ars gegn bólu­setn­ingu barna. Fyr­ir­les­ar­inn, Suzanne Hump­hries, hefur vakið mikla athygli fyrir að tala gegn bólu­setn­ingu. Tilefni fyr­ir­lest­urs­ins var útgáfa á íslenskri þýð­ingu bókar Hump­hries, Saga bólu­setn­inga - sjúk­dómar, blekk­ingar og tál­sýnir.

Heitar umræður spruttu upp á innri vef starfs­manna, HI-starf, vegna máls­ins en fimm kenn­arar vöktu þar fyrst athygli á mál­inu. „Háskóli Íslands var svo örlátur að lána Suzanne Hump­hries nafnið sitt með því að leigja henni stofu til að flytja fyr­ir­lestur og aug­lýsa og selja bók­ina sína. Hefur Háskóli Íslands markað sér stefnu/vinnu­lag um útleigu á hús­næði háskól­ans til utan­að­kom­andi aðila? Okkur finnst að Háskóli Íslands eigi ekki að setja nafn sitt við skottu­lækn­ingar, bull og hræðslu­á­róður með þessum hætti,“ segir í pósti kennar­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár