Sjómannasambandið svarar félagsmanni: „Skíttu í píkuna á þér“

Hvöss orða­skipti áttu sér stað á Facebook á milli Sjó­manna­sam­band Íslands og Ómars Sig­urðs­sonar sjó­manns. Þeir efuð­ust um sjó­mennsku hvors ann­ars. Sjómenn standa nú í kjara­deilu við Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Sjómannasambandið svarar félagsmanni: „Skíttu í píkuna á þér“
Formaður Val­mundur Val­munds­son tal­aði fyrir hönd sam­bands­ins á Facebook. Mynd: Tryggvi

Nokkuð hvöss orða­skipti áttu sér stað á Facebook-síðu Sjó­manna­sam­band Íslands yfir jólin. Rétt fyrir jól, 22. des­em­ber, deildu sam­tökin til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Verka­lýðs­fé­lags Akranes vegna kjara­deilu sjó­manna við Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi en kjara­samn­ingur sjó­manna hefur verið laus í fimm ár á föstu­dag­inn. Svo fór að ekki einn sjó­maður lét heyra í sér í athuga­semdum og upp úr því spratt rifr­ildi milli sam­bands­ins og sjó­manns­ins. Lokaorð sam­bands­ins til sjó­manns­ins voru: „Skíttu í pík­una á þér!“

Til­kynn­ing Verka­lýðs­fé­lags Akraness sner­ist um skoð­ana­könnun sem send verður á sjó­menn til að taka afstöðu um fram­haldið. „Nú er staðan þannig að sjó­menn þurfa að taka afstöðu til þess hvað gera skuli og þess vegna sendi félagið út bréf með skoð­ana­könnun þar sem meðal ann­ars er spurt um hvort hefja eigi und­ir­bún­ing verk­falls­að­gerða. Vonast for­maður félags­ins eftir að sjó­menn sendi skýr skila­boð um hvað þeir vilji gera til að knýja fram eðli­legan, sann­gjarnan og rétt­látan kjara­samn­ing til handa sjó­mönnum því það er ótækt með öllu að sjó­menn einir séu án þess að hafa gild­andi kjara­samn­ing um sín störf,“ segir í til­kynn­ingu Verka­lýðs­fé­lags Akraness.

„Við erum bara sjó­menn og við tölum þannig.“

Val­mundur Val­munds­son er for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands og sér jafn­framt um Facebook-síðu sam­bands­ins. Í sam­tali við Stundina segir hann ekki um rifr­ildi að ræða heldur sjó­ara­mál. „Við erum bara sjó­menn og við tölum þannig, ég er líka sjó­maður þó ég sé for­maður Sjó­manna­sam­bands­ins, menn geta ekki verið við­kvæmir fyrir því. Ég stend alveg við það,“ segir Val­mundur.  Öll sjó­manna­fé­lög og sjó­manna­deildir í öðrum stétt­ar­fé­lögum eru innan sam­bands­ins sem var stofnað árið 1957.

Efast um sjómennsku hvors annars

Undir deil­ing­una á til­kynn­ing­unni skrifar sam­bandið ákall til sjó­manna um að tjá sína skoðun á mál­inu. Ómar Sig­urðs­son kveður sér orð og segir löngu kom­inn tíma til aðgerða. „Það er löngu kom­inn tími til aðgerða og það kemur ekki á óvart að frum­kvæðið komi frá Vil­hjálmi Birg­is­syni. Sjó­manna­for­ustan í land­inu er óvirk og of tengd útgerðaris­unum í land­inu. Það ger­ist ekk­ert ef ekki er skipt um for­ustu­sveit. Stein­dautt lið,“ skrifar Ómar.

„Þú hefur aldrei í káetu komið Val­mundur ef þú kallar þetta að rífa kjaft „Tussusnúður“.“

Annan í jólum skrifar Ómar aðra athuga­semd sem hann seg­ist hafa fengið í einka­skila­boði frá Valmundi: „Án þess að ég ætli að ríf­ast við þig Ómar þá var það að frum­kvæði Sjó­manna­sam­bands­ins að þessi könnun er gerð. Öll félögin í land­inu fengu sama pakk­ann frá okkur og spyrja sína félags­menn sömu þriggja spurn­ing­anna. Mér finnst eig­in­lega lág­marks­krafa að menn kynni sér málin áður en þeir fara a rífa kjaft.“

Við þetta bætir Ómar svo að það sýni þörf á nýrri for­ustu að honum sé ekki svarað í athuga­semdum. „Þetta sýnir þörf­ina á að skipta um for­ustu í öllum sam­böndum sjó­manna alla­veg­ana hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta er sjúkt lið sem vinnum með útgerð­inni gegn sjó­mönnum ... Burt með það,“ skrifar Ómar.

Við þetta kemur Sjó­manna­sam­bandið sjálft og sviðið og svarar Ómari á þá leið að skoð­ana­skiptin séu ekki boð­leg og hann hafi sleppt sein­ustu setn­ing­unni. Því næst fór sam­bandið og Ómar að ríf­ast um hvort kjaftur hafi verið rif­inn. „Þú sagðir að ég væri að rífa kjaft Val­mundur svo varla hefur þú átt við mig svo ég tek því svo að þú eigir við stór­út­gerð­ina,“ skrifar Ómar og sam­bandið svarar svo: „Ég fór fram á að þú kynntir þér málin áður en kjaftur væri rif­inn. Einfalt er það ekki?“

Ómar svarar strax í sömu mynd: „Hvenær reif ég kjaft???? Kallarðu það að hafa skoð­anir sé að rífa kjaft Val­mundur?“ Sjó­manna­sam­bandið bregst þá við með því að spyrja Ómar hvort hann sé sjó­maður, sem Ómar svarar ját­andi og seg­ist hann hafa verið sjó­maður í fimm­tíu ár. „Ok. Þá kanntu sjó­ara­mál er það ekki og ættir ekki að vera við­kvæmur þó mér finn­ist þú rífa kjaft. Og by the way þá rífur stór­út­gerðin stólpa­kjaft eins og kröf­urnar þeirra bera með sér,“ skrifar Sjó­manna­sam­band Íslands.  Ómar svarar um hæl og efast um að Val­mundur hafi stigið í káetu: „Þú hefur aldrei í káetu komið Val­mundur ef þú kallar þetta að rífa kjaft „Tussusnúður“.“ Sjó­manna­sam­bandið sló svo botn­inn í þessi orða­skipti með fyrr­nefndum orðum: „Skíttu í pík­una á þér!“

Flestir á því að láta heyra í sér

Líkt og fyrr segir Val­mundur að um sé að ræða sjó­ara­tal. Hann blæs á þá full­yrð­ingu að hann sé tengdur útgerð­inni. „Ég kann­ast ekki við það og er ekki tengdur útgerð­inni, það eru fimm ár síðan ég hætti á sjó,“ segir Val­mundur.

Val­mundur ferð­ast nú um landið og fundar með sjó­mönnum um hvaða eigi að gera í kjara­bar­áttu þeirra. „Menn hafa skoð­anir á hlut­unum og manni sýn­ist að flestir séu á því að við eigum að láta heyra í okkur,“ segir Val­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár