Sjómaður rekinn eftir ásakanir um smitsjúkdóm

Háseti á Gull­berg­inu frá Vest­manna­eyjum var sendur í land vegna órök­studdra grun­semda um að hann væri smit­aður af ótil­greindum sjúk­dómi eftir Taílands­ferð, þar sem hann kynnt­ist konu.

Sjómaður rekinn eftir ásakanir um smitsjúkdóm
Rekinn í land eftir Taílands­ferð Magni Freyr Hauksson er lausa­maður, þrátt fyrir tveggja ára starf, og fær því ekki upp­sagn­ar­frest eftir að hafa neitað að fara í sjúk­dóma­skoðun þegar hann var sendur í land grun­aður, án rök­semda, um að vera með smit­sjúk­dóm. Mynd: Stundin

Sjómaður úr Vest­manna­eyjum, sem ferð­að­ist til Taílands og átti í sam­bandi við þar­lenda konu, var rek­inn frá borði vegna grun­semda skip­stjórn­ar­manna um að hann hefði smit­ast af ótil­greindum sjúk­dómi. Þótt hann hafi starfað á skip­inu í tvö ár er hann flokk­aður sem lausa­maður og fær engan upp­sagn­ar­frest.

Maðurinn, Magni Freyr Hauksson, hefur gegnt stöðu háseta, neta­manns og báts­manns á skut­tog­ar­anum Gull­bergi VE í tvö ár en situr nú launa­laus í landi vændur um að vera smit­andi.
„Þeir vildu senda mig í land vegna þess að ég var ekki búinn að sanna það að ég væri ekki með ein­hvern sjúk­dóm,“ segir Magni og tengir kröfu um lækn­is­skoðun við áfanga­stað­inn. „Þetta eru for­dómar á háu stigi.“

Afdrifaríkt ferðalag

Aðdrag­andi brott­rekst­urs­ins var að Magni Freyr fór í fyrstu utan­lands­ferð­ina í ald­ar­fjórð­ung. Ferðin var til Taílands. Hann kynnt­ist þar­lendri konu sem hann átti í sam­bandi við í einn og hálfan mánuð, áður en leiðin lá aftur heim á leið til Íslands og Vest­manna­eyja. Sam­bandið er enn á byrj­un­ar­stigi og enn óút­séð með afdrif þess. Í kjöl­farið fylgdi hins vegar atvinnu­missir.

Eftir heim­kom­una mætti Magni um borð eins og hann hafði verið boð­aður til og bjóst ekki við öðru en að farið væri frá landi til veiða eins og venju­lega. Þegar hann var hins vegar við að klæða sig í gall­ann kom skip­stjór­inn í stakka­geymsl­una og stillti honum upp við vegg: Hann færi aftur í land í lækn­is­skoðun eða kæmi ekki aftur um borð í skipið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár