Bjarni segir gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi „óraunhæft“ – Sjálfstæðisflokkurinn vill„öfluga samkeppni“

Flokk­ur­inn vill lækka hámarks­greiðslur sjúk­linga bæði í lyfja­greiðslu­kerfi og greiðslu­þátt­töku­kerfi heil­brigð­is­þjón­ustu en jafn­framt hvað varðar notkun hjálp­ar­tækja.

Bjarni segir gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi „óraunhæft“ – Sjálfstæðisflokkurinn vill„öfluga samkeppni“

„Fjöl­breytt rekstr­ar­form“ og „öflug sam­keppni“ í heil­brigð­is­þjón­ustu er á meðal þess sem er boðað í stjórn­mála­á­lyktun sem sam­þykkt var á flokks­ráðs­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, full­yrti jafn­framt í leið­togaum­ræð­unum á RÚV síð­asta fimmtu­dag að það væri „óraun­hæft að tala fyrir alger­lega gjald­frjálsu heil­brigð­is­kerfi“, enda þyrfti að tryggja aðgangs­stýr­ingu að kerf­inu. 

Áherslur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í heil­brigð­is­málum eru ólíkar þeim sem kynntar voru á flokks­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem einnig var hald­inn í gær. Fram kom að Sam­fylk­ingin vildi stefna að gjald­frjálsri heil­brigð­is­þjón­ustu, en slíkt kynni á end­anum að kosta rík­is­sjóð rúma 30 millj­arða á ári. Telur Oddný G. Harð­ar­dóttir, for­maður flokks­ins, að unnt sé að fjár­magna þetta með upp­boði afla­heim­ilda, hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu og upp­töku raf­orku­gjalds á stór­iðju.

Þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stefni ekki að gjald­frjálsu heil­brigð­is­kerfi kemur skýrt fram í stjórn­mála­á­lyktun flokks­ráð­fundar að „lækka þurfi greiðslu­þátt­töku sjúk­linga enn frekar með því að lækka hámarks­greiðslur sjúk­lingar bæði í lyfja­greiðslu­kerfi og greiðslu­þátt­töku­kerfi heil­brigð­is­þjón­ustu, sem og kostn­aði við notkun hjálp­ar­tækja“. Auk þess sé brýnt að Sjúkra­trygg­ingar Íslands taki auk­inn þátt í ferða­kostn­aði sjúk­linga. 

„Efna­hagur fólks á aldrei að ráða aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son í leið­togaum­ræð­unum og lagði einkum áherslu á að dregið yrði úr greiðslu­þátt­töku lang­veikra og öryrkja. „Ég held hins vegar að það sé óraun­hæft að tala fyrir alger­lega gjald­frjálsu heibrigð­is­kerfi vegna þess að þá ótt­ast ég að við munum missa alla aðgangs­stýr­ingu að kerf­inu og það er reynsla ann­arra þjóða, það er í sam­ræmi við ráð­legg­ingar alþjóð­legra sér­fræð­inga um þessi efni en það þýðir ekki að gjald­takan eða kostn­að­ar­hlut­deild sjúk­linga eigi að vera ein­hvers konar aðgangs­hindrun,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár