Segir Pírata vilja að fólk geti „legið í sófanum hjá sálfræðingum daginn út og inn og látið hvítta tennurnar, allt í boði skattgreiðenda“

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, heldur áfram að hæð­ast að áformum Pírata um að tann­lækn­ingar og sál­fræði­þjón­usta verði nið­ur­greidd fyrir alla lands­menn.

Segir Pírata vilja að fólk geti „legið í sófanum hjá sálfræðingum daginn út og inn og látið hvítta tennurnar, allt í boði skattgreiðenda“

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að Píratar vilji koll­varpa sjáv­ar­út­veg­inum á Íslandi og jafn­framt stjórn­ar­skránni.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti í dag. Þá hæð­ist hann að hug­myndum um borg­ara­laun og ýjar að því að Píratar vilji að iðju­leys­ingjar geti „setið heima við tölv­una á borg­ara­launum, legið í sóf­anum hjá sál­fræð­ingum dag­inn út og inn og látið hvítta tenn­urnar, allt í boði skatt­greið­enda“.

Sigurður Hólm Gunn­ars­son, iðju­þjálfi og for­stöðu­maður á skamm­tíma­heim­ili fyrir ung­linga í Reykja­vík, vakti mikla athygli í síð­ustu viku þegar hann skrif­aði pistil um and­leg veik­indi sín, geð­heil­brigð­is­kerfið á Íslandi og for­dóma sem and­lega veikt fólk þarf að þola.

Hann svarar Brynjari á Facebook-síðu sinni og skrifar: „Að þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins geri ítrekað lítið úr fólki sem þarf á aðstoð sál­fræð­inga og tann­lækna að halda er for­kast­an­legt og flokki hans til skammar.“

Vísar hann þar til ummæla Brynjars frá því í síð­ustu viku, þegar þing­mað­ur­inn hædd­ist að að áformum Pírata um að tann­lækn­ingar og sál­fræði­þjón­usta verði nið­ur­greidd fyrir alla lands­menn með sama hætti og gildir um aðra heil­brigð­is­þjón­ustu. 

Brynjar er á meðal þeirra sem gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu á Alþingi í próf­kjöri sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík sem fram fer þann 3. sept­em­ber næst­kom­andi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár