Segir neikvæðni eina mestu hættuna sem Íslendingar standi frammi fyrir

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra gagn­rýndi Íslend­inga fyrir að barma sér þegar vel gengur í stað þess að bera harm sinn í hljóði, eins og þeir væru þekktir fyrir.

Segir neikvæðni eina mestu hættuna sem Íslendingar standi frammi fyrir

„Mestu hætt­urnar sem við stöndum frammi fyrir eru kæru­leysi, það að við lítum á árang­ur­inn sem sjálf­gef­inn, og nei­kvæðni. Látum engan telja okkur trú um að Ísland sé von­laust og hér þurfi að snúa öllu á hvolf.“

Þetta er á meðal þess sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í ára­móta­ávarpi sínu í kvöld. Í ræð­unni kom hann víða við og lagði áherslu á þann mikla árangur sem náðst hefði á Íslandi í áranna rás. Sagði hann að Íslend­ingar hefðu áunnið sér ímynd sem ein­kennd­ist meðal ann­ars af því að þeir bæru harm sinn í hljóði. Svo spurði for­sæt­is­ráð­herra: „En eigum við skilið að halda þess­ari ímynd ef við ekki aðeins börmum okkur meira yfir áskor­unum en áður, heldur börmum okkur líka þegar vel gengur?“ 

Vitnaði hann tví­vegis í írska heim­spek­ing­inn Edmund Burke sem uppi var á 18. öld og hefur oft verið kall­aður faðir breskrar íhalds­stefnu. 

Framúrskarandi árangur Íslands

„Árið 2015 reynd­ist far­sælt fyrir íslensku þjóð­inna. Flest hefur gengið okkur í hag und­an­farin miss­eri og betur en víð­ast hvar ann­ars staðar. Á mörgum sviðum, frá íþróttum að vís­indum, stóðu full­trúar okkar Íslend­inga sig fram­úr­skar­andi vel á liðnu ári,“ sagði Sig­mundur og bætti við:

„Hagsæld jókst til mik­illa muna á árinu. Kaup­máttur -það sem lands­menn fá fyrir launin sín- hefur nú auk­ist um 13 pró­sent á 30 mán­uðum. Fáheyrt, nán­ast óþekkt, er að hagur fólks vænk­ist það hratt. Enn merki­legra er að á tímum mik­ils hag­vaxtar hefur jöfn­uður áfram auk­ist. Þannig hafa laun verka­fólks hækkað hlut­falls­lega meira en laun stjórn­enda, laun kvenna hækkað hlut­falls­lega meira en laun karla og kaup­máttur líf­eyr­is­greiðslna og bóta auk­ist meira en kaup­máttur launa á tíma­bil­inu.“

Sagði hann að vel hefði tek­ist til með stór mál. „Stutt er síðan skulda­vandi stóð efna­hags­legri fram­tíð lands­ins fyrir þrifum en nú hefur skulda­hlut­fall heim­il­anna lækkað það mikið og hratt að skuldir íslenskra heim­ila eru orðnar hlut­falls­lega lægri en í mörgum nágranna­löndum okkar.“

For­sæt­is­ráð­herra vís­aði sér­stak­lega til þess í ræðu sinni að ákveðnir menn segðu að „fyrst ekki sé búið að ná full­komnun sé betra að gera enn eina til­raun með ein­hverja hug­mynda­fræði sem lofar full­komnu sam­fé­lagi“, en slíkt hefði hins vegar alltaf endað illa. Ekki kom fram hvort Sig­mundur væri að vísa til afla á Íslandi. 

„Gæfurík þjóð í góðu landi“

Sig­mundur lagði áherslu á mik­il­vægi þess að íslensk þjóð við­ur­kenndi árang­ur­inn sem náðst hefði. Þannig gæti árangur for­tíðar orðið hvatn­ing til frek­ari afreka í fram­tíð­inni. 

„En erum við að nýta þá hvatn­ingu sem felst í árangrinum, og kunnum við að meta lífs­gæði okkar hér á Íslandi og það hvað við erum lánsöm í sam­an­burði við aðrar þjóðir? Okkur Íslend­ingum hefur í gegnum tíð­ina líkað ágæt­lega við þá ímynd sem þjóðin hefur áunnið sér. Við höfum verið þekkt fyrir dugnað, þraut­seigju og þol­gæði. Íslend­ingar hafa verið taldir úrræða­góðir á rauna­stund, yfir­veg­aðir og færir um að bera harm sinn í hljóði og gef­ast aldrei upp. Þessi ímynd varð áreið­an­lega ekki til af ástæðu­lausu enda er ótrú­legt hvaða árangri Íslend­ingar hafa náð í þessu landi við erf­iðar aðstæður um aldir. En eigum við skilið að halda þess­ari ímynd ef við ekki aðeins börmum okkur meira yfir áskor­unum en áður heldur börmum okkur líka þegar vel gengur?“

Lokaorð Sig­mundar hljóð­uðu svo:

„Ef okkur auðn­ast að fylgja þeirri leið á nýju ári getur árið 2016 orðið enn betra en árið sem nú er að ljúka. Fram­farir munu þá halda þá áfram, og und­an­tekn­ing­unum mun áfram fækka og þær sem eftir standa verða við­ráð­an­legri. Við erum gæfu­rík þjóð í góðu landi. Við höfum náð árangri með þraut­seigju og skyn­semi að leið­ar­ljósi. Þótt veður séu válynd er bjart yfir land­inu okkar við þessi ára­mót.“

Lesa má ávarpið í heild á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár